

Mynd: UN Women/Ekram Hamad Fadlalla
Ný könnun leiðir í ljós að nær helmingur kvennasamtaka sem styðja konur og stúlkur í neyð gæti neyðst til að hætta starfsemi innan sex mánaða. Ástæðan er alþjóðlegur niðurskurður í fjárstuðningi til mannúðaraðstoðar.
Skýrsla UN Women um stöðu kvennasamtaka í kjölfar niðurskurðar, At a Breaking Point: The Impact of Foreign Aid Cuts on Women’s Organizations in Humanitarian Crises Worldwide, kom út í dag. Þar kemur fram að 90 prósent þeirra 411 samtaka sem svöruðu könnuninni á 44 krísusvæðum telja sig vera komin að þolmörkum vegna niðurskurðar í fjárstuðningi frá alþjóðasamfélaginu. Þar á meðal eru samtök sem styðja við fatlaðar konur og þolendur kynferðisofbeldis.
Þörfin fyrir mannúðaraðstoð eykst
Á heimsvísu þurfa 308 milljónir fólks í 73 löndum á mannúðaraðstoð að halda. Sú tala fer ört vaxandi vegna aukinna átaka, loftslagsbreytinga, matvælaóöryggis og heimsfaraldra. Konur og stúlkur verða iðulega verst úti í þessum aðstæðum. Ástæðan er sú að dauðsföll tengd meðgöngu eru algeng, vannæring er útbreidd og kynferðisofbeldi eykst.

Þrátt fyrir þessa vaxandi þörf glímir mannúðarkerfið við alvarlegan fjárskort. Skertur stuðningur ógnar lífsnauðsynlegri þjónustu, sem getur skipt sköpum fyrir líf og heilbrigði kvenna og stúlkna.
„Ástandið er alvarlegt. Konur og stúlkur hafa einfaldlega ekki efni á að missa þá líflínu sem kvennasamtök eru,“ segir Sofia Calltorp, sem fer fyrir mannúðaraðgerðum hjá UN Women. „Þrátt fyrir lykilhlutverk sitt í að veita þjónustu, vera málsvarar og fylgjast með stöðu mála, hafa þessi samtök verið vanfjármögnuð lengi – jafnvel áður en niðurskurðurinn hófst nýverið. Stuðningur við þau er ekki aðeins spurning um jafnrétti og réttindi – hann er lífsnauðsynlegur.“

Mynd: UN Women/Ekram Hamad Fadlalla
Tölurnar tala sínu máli:
- 47% samtaka búast við að þurfa að hætta starfsemi innan sex mánaða.
- 51% hafa þegar þurft að fresta verkefnum, þar á meðal þeim sem styðja þolendur kynbundins ofbeldis og veita vernd, lífsviðurværi og heilbrigðisþjónustu.
- 72% hafa þurft að segja upp starfsfólki – í sumum tilfellum stórum hluta.
Þrátt fyrir ógnvænlegt ástand í heiminum halda kvennasamtök ótrauð áfram. Þau leiða samfélög sín með hugrekki, seiglu og óbilandi vilja til að byggja upp betri framtíð. UN Women stendur með þessum samtökum og styður kröfu þeirra um áframhaldandi fjármögnun. Þau eru hornsteinn sameiginlegrar mannúðaraðstoðar og lykilþáttur í baráttunni fyrir réttlæti, öryggi og von í verstu krísum heimsins.
Sjá fréttatilkynningu UN Women hér
Þú getur lagt þitt af mörkum
Með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðili (Ljósberi) UN Women á Íslandi styður þú við verkefni UN Women um allan heim.
Meginhlutverk UN Women á heimsvísu er:
- Afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum
- Kvenmiðuð neyðaraðstoð
- Útrýming fátæktar
- Að efla pólitíska þátttöku kvenna
- Konur, friður og öryggi
Þú getur einnig lagt til frjáls framlög:
Í gegnum AUR í númerið 123-839-0700
Leggðu til frjáls framlög í banka:
0537–26–55505
551090-2489

