
Eliza Reid forsetafrú og heiðursgestur
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna er haldinn hátíðlegur í dag, 8. mars, og að því tilefni efndu Kauphöllin (e. Nasdaq Iceland) í samstarfi við UN Women á Íslandi, FKA – Félag kvenna í atvinnulífinu og Samtök atvinnulífsins til viðburðar í Hörpu í gær þar sem opnunarbjöllu var hringt fyrir jafnrétti. Kauphallir víða um heim hringja inn bjöllu fyrir jafnrétti í þessari viku í samstarfi við UN Women.
Eliza Reid forsetafrú var heiðursgestur viðburðarins og hringdi bjöllunni í ár. Í ræðu sinni minntist Eliza sérstaklega á þá staðreynd að þrátt fyrir að Ísland sé framarlega í jafnréttismálum séu konur hér á landi enn með lægri laun en karlar. Þær þéni því minna yfir starfsævina og fái þar af leiðandi lægri lífeyri. Hún benti einnig á þá staðreynd að af 800 stærstu fyrirtækjum á Íslandi séu aðeins 13% þeirra í höndum kvenna. Sömuleiðis að meirihluti fjárfestinga í nýsköpun fari í hendur fyrirtækja sem rekin eru af körlum.
Úlf Níelsson, pófessor í hagfræði, kynnti á viðburðinum rannsókn sína þar sem skoðuð voru áhrif kynferðislegrar áreitni á virði fyrirtækja. Niðurstöður hennar sýndu fram á það með afgerandi hætti að sterk fylgni sé á milli þess að virði fyrirtækja á markaði lækki þegar forsvarsfólk þeirra gerist uppvíst af því að beita ofbeldi eða kynferðislegri áreitni. Í þessu samhengi skiptir gríðarlega miklu máli að taka strax á málum komi þau upp innan fyrirtækja. Það er því mikið í húfi fyrir fyrirtæki að tryggja forvarnir, öryggi kvenna og janfréttismiðaða nálgun á vinnustaðnum og taka MeToo umræðuna alvarlega – ekki bara í orði heldur líka á borði.
Bjölluhringingunni er ætlað að vera sérstök hvatning til fyrirtækja í einkageiranum að hafa leiðarljós jafnréttis- og mannréttinda í forgrunni í sínum störfum.
Á alþjóðlegum baráttudegi kvenna í ár er spjótum UN Women sérstaklega beint að áhrifum og tengslum kynjamismunar og loftslagsbreytinga.

Loftslagsbreytingar eru helsta viðfangsefni og áskorun okkar tíma, en talið er að staða kvenna og stúlkna sé sérstakur áhættuþáttur þegar kemur að loftslagsbreytingum. Kynbundin sjónarmið hafa hingað til ekki verið sérstaklega samþætt í stefnur og áætlanir sem snúa að loftslagsvandanum. UN Women kallar eftir að úr því verði bætt.
Sömuleiðis skiptir máli að tryggja konum sæti við borðið þegar teknar eru ákvarðanir um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum og að raddir fjölbreytileikans heyrist hátt til að tryggja sjálfbærni og jafnrétti. Í náttúruhamförum og stríði eru konur, og þá sérstaklega jaðarsettar konur, berskjaldaðri fyrir kynbundnu ofbeldi eða öðrum hættulegum aðstæðum sem ógna lífsviðurværi þeirra, vellíðan og öryggi. Sú vá sem efnahagslegar- og félagslegar afleiðingar loftslagsbreytinga er, er þar engin undantekning.
UN Women leggja áherslu á mikilvægi þess að í allri umræðu um loftslagsmál séu jafnréttismál leiðarstef, einungis þannig tryggjum við sjálfbærni til framtíðar.

