Áhrif stríðs á líf kvenna og stúlkna fara versnandi

Heim / Fréttir / Áhrif stríðs á líf kvenna og stúlkna fara versnandi

Konur í Súdan hafa þrýst á aðkomu þeirra að friðarviðræðum

Áhrif stríðs og átaka á líf kvenna og stúlkna fara versnandi. Hlutfall kvenna sem látast í stríðsátökum tvöfaldaðist á milli áranna 2022 og 2023. Fjórir af hverjum tíu sem láta lífið í átökum eru konur. Þá sýna gögn frá Sameinuðu þjóðunum að kynbundið ofbeldi á stríðstímum hefur aukist um 50 prósent.

Samhliða þessu ríkir algjört virðingarleysi fyrir alþjóðalögum, lögum sem eiga m.a. að vernda konur og börn á stríðstímum. Sem dæmi eiga konur á stríðssvæðum sífellt erfiðara um vik með að verða sér úti um heilbrigðisþjónustu. Hvern dag deyja 500 konur og stúlkur á stríðssvæðum vegna lífshættulegra fylgikvilla á meðgöngu eða í fæðingu. Í lok síðasta árs voru 180 konur sem fæddu börn dag hvern á Gaza – fæstar án fullnægjandi þjónustu eða lyfja.

Þetta er á meðal þess sem kemur fram í skýrslu frá framkvæmdastjórn Sameinuðu þjóðanna um stöðu ályktunar 1325 um konur, frið og öryggi. Ályktunin var samþykkt af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir 24 árum síðan og viðurkennir sérstöðu kvenna í stríði og átökum. Eins er mikilvægi hlutverks kvenna í friðaruppbyggingu viðurkennt í ályktuninni.

Konur gjalda fyrir stríð sem þær hefja ekki

Framkvæmdastýra UN Women, Sima Bahous, segir konur og stúlkur halda áfram að gjalda fyrir stríðsrekstur karlmanna.

„Þetta á sér stað samhliða stríðinu gegn réttindum kvenna. Markvisst er ráðist að réttindum kvenna, ekki aðeins í ríkjum þar sem átök geisa, en aðförin að réttindum kvenna er enn banvænni við slíkar aðstæður. Við höfum horft upp á hvernig jafnrétti hefur átt undir högg að sækja á mörgum vígstöðvum. Ef við stöndum ekki upp núna og förum fram á breytingar, munum við finna fyrir afleiðingunum næstu áratugina og friður verður áfram utan seilingar.“

Þrátt fyrir alþjóðlega samþykkt um fulla þátttöku kvenna í friðarviðræðum og -uppbyggingu er raunin önnur. Konur voru aðeins 9,6% samningafólks í öllum formlegum friðarviðræðum sem áttu sér stað árið 2023. Samt hafa rannsóknir sýnt fram á að friðarsamningar eru líklegri til að ná árangri hljóti konur aðkomu að þeim.

Í Jemen stýrðu konur samningaviðræðum sem tryggðu almenningi aðgengi að neysluvatni. 49 kvenrekin félagasamtök í Súdan hafa þrýst á að konur hafi aðkomu að friðarviðræðum í landinu.

Skortur á fjármagni þrándur í götu jafnréttis

Skortur á fjármagni er ein helsta hindrunin í því að raungera ályktun 1325. Árið 2025 verður gríðarlega mikilvægt ár í sögu jafnréttis. Þá verða 50 ár liðin frá Kvennaárinu 1975 og 30 ár liðin frá því að Peking-sáttmálinn var samþykktur. Það er von UN Women að í tilefni þessara tímamóta verði auknu fjármagni veitt til jafnréttismála og til þess að styrkja þátttöku kvenna í friðaruppbyggingu um allan heim.

Related Posts
Internally displaced women are seen receiving hygiene kits from a volunteer at a shelter in Port Sudan. Photo: Awoon Organization.