„Af hverju fara konur ekki bara?“ – vel sótt Ljósaganga

Heim / Fréttir / „Af hverju fara konur ekki bara?“ – vel sótt Ljósaganga

Á 10 mínútna fresti er kona myrt af einhverjum sem hún þekkir. Mynd/Valli

„Á tíundu hverri mínútu er kona myrt af einhverjum sem stendur henni nærri eða er tengdur henni fjölskylduböndum. Á tíundu hverri mínútu er kona eða stúlka myrt vegna skaðlegra og úreltra hugmynda um kynjahlutverk, kynjamismunun, sæmd og eignarrétt karlmanna á líkömum kvenna. Á tíundu hverri mínútu,“ sagði Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, er hún ávarpaði fólk á Ljósagöngu UN Women á Íslandi. Gangan fór fram 25. nóvember, á Alþjóðleg­um bar­áttu­degi gegn kyn­bundnu of­beldi. Viðburðurinn var vel sóttur, en um 120 einstaklingar mættu og sýndu með þeim hætti samstöðu gegn kynbundnu ofbeldi.

Yf­ir­skrift Ljósa­göng­unn­ar var Á 10 mínútna fresti er kona myrt af einhverjum sem hún þekkir og vísar til niðurstöðu nýrrar skýrslu UN Women og UNODC, Fíkniefna- og sakamálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, um kvennamorð sem framin voru árið 2023. Niðurstöður sýna að af þeim 85.000 konum sem myrtar voru af ásettu ráði, voru 60% myrtar af maka eða öðrum nánum ættingja (föður, móður, frændum eða bræðrum), alls 51.100 konur. Ein kona á tíu mínútna fresti.

 

Hluti kvenna sem myrtar voru af maka áður tilkynnt heimilisofbeldi

Sólveig Guðmundsdóttir, leikkona, leiddi gönguna ásamt Stellu. Las hún upp frásögn konu af ofbeldi í nánu sambandi, sem félagasamtökin Öfgar höfðu veitt leyfi fyrir:

„Af hverju fara konur ekki bara?“ Hversu oft hef ég heyrt þessa spurningu og í hvert einasta skipti langar mig að garga eins hátt og ég get: „Af því þær geta það ekki!“ Gerandi minn braut mig í milljónir öreinda, hann tók frá mér allt sjálfstæði og gerði mig hola að innan.“

Frásögnin ljóstrar upp um hversu erfitt, og oft ómögulegt, það getur reynst konum og stúlkum að yfirgefa ofbeldissambönd. Gögn frá þremur ríkjum – Frakklandi, Suður-Afríku og Kólumbíu – sýna að marktækur hluti kvenna sem myrtar voru af maka árið 2023 (22-37%) höfðu áður tilkynnt heimilisofbeldi til yfirvalda. Því hefði verið hægt að koma í veg fyrir dauða fjölda kvenna ef úrræðum á borð við nálgunarbann hefði verið beitt strax. Aðstæður þar sem ofbeldi í nánum samböndum getur endað með kvennamorði hafa verið rannsakaðar af afbrotafræðingum. Þær rannsóknir sýna að saga um heimilisofbeldi, hótanir um ofbeldi og yfirvofandi sambandsslit eru talin til áhættuþátta.

Í skýrslunni kemur jafnframt í ljós að kvennamorð í Evrópu og Ameríkunum (e. Americas) eru að mestu leyti framin af mökum eða nánum ættingjum. Af öllum þeim konum sem myrtar voru í Evrópu árið 2023 voru 64% myrtar af maka (58% í Ameríkunum). Í öðrum heimsálfum voru konur og stúlkur líklegri til að vera myrtar af nánum ættingja.

 

Um 16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi

16 daga átakið gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðlegt átak sem hefst 25. nóvember  og lýkur 10. desember, á Alþjóðlega mannréttindadeginum.

Í tilefni dagsins voru Harpa tónlistarhús, Hallgrímskirkja, Háskóli Íslands og Stjórnarráðið lýst upp í app­el­sínu­gul­um lit. En appelsínuguli liturinn táknar framtíð án ofbeldis og er litur alþjóðlegs baráttudags gegn kynbundnu ofbeldi. Yfirskrift alþjóðlega átaksins er Every 10 Minutes, a woman is killed. #NoExcuse. UNiTE to End Violence against Women. Hægt er að lesa skýrslu UN Women í heild hér.

Myndir/Valli

Related Posts