
Árleg Ljósaganga UN Women á Íslandi gegn kynbundnu ofbeldi.
Á heimsvísu voru um 51.100 konur og stúlkur myrtar af maka eða nánum ættingja árið 2023. Það þýðir að um 140 konur og stúlkur voru myrtar daglega af einhverjum sem tengist þeim fjölskylduböndum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu UN Women og UNODC, Fíkniefna- og sakamálaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, um kvennamorð.
Afríka er sú heimsálfa þar sem tíðni kvennamorða er hvað hæst, bæði í tölum en einnig þegar litið er til fjölda fórnarlamba miðað við hverja 100.000 íbúa (2,9 pr 100.000). Í Ameríkunum (e. the Americas) og Eyjaálfu var tíðnin eitthvað lægri, 1,6 og 1,5 á hverja 100.000 íbúa. Tíðni kvennamorða var umtalsvert lægri í Asíu og Evrópu sé litið til fjölda fórnarlamba miðað við hverja 100.000 íbúa (0,8 og 0,6)
Kvennamorð í Evrópu og Ameríkunum eru að mestu leyti framin af mökum eða nánum ættingjum. Af öllum þeim konum sem myrtar voru í Evrópu árið 2023 voru 64% myrtar af maka (58% í Ameríkunum). Í öðrum heimsálfum voru konur og stúlkur líklegri til að vera myrtar af nánum ættingja, til dæmis foreldri eða bróður.
Höfðu áður tilkynnt maka til lögreglu
Gögn frá þremur ríkjum – Frakklandi, Suður-Afríku og Kólumbíu – sýna að marktækur hluti kvenna sem myrtar voru af maka (22-37%) höfðu áður tilkynnt heimilisofbeldi til lögreglu. Þetta bendir til þess að hægt hefði verið að koma í veg fyrir dauða fjölda kvenna ef úrræðum á borð við nálgunarbann hefði verið beitt strax í upphafi. Aðstæður þar sem ofbeldi í nánum samböndum getur endað með kvennamorði hafa verið rannsakaðar. Þær rannsóknir sýna að saga um heimilisofbeldi, hótanir um ofbeldi og yfirvofandi sambandsslit eru talin til áhættuþátta.
„Ofbeldi gegn konum og stúlkum er ekki óumflýjanlegur hluti daglegs lífs – hægt er að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi. Við þörfnumst sterkrar löggjafar, bættrar gagnaöflunar, ríkari ábyrgðar stjórnvalda, menningu sem leyfir ofbeldi ekki að þrífast og aukið fjármagn til kvenrekinna félagasamtaka. Nú er við nálgumst þrjátíu ára afmæli Peking-sáttmálans á næsta ári er kominn tími til að leiðtogar heims sameinist og skuldbindi sig að uppfylla Peking-sáttmálann og uppræta þá krísu sem kynbundið ofbeldi er í eitt skipti fyrir öll,“ sagði Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women.
Lesa skýrsluna í heild hér.
Færri ríki afla gagna um kvennamorð en áður
UN Women hefur frá árinu 2006 ásett sé að afla kynjaðra gagna á heimsvísu. Á síðustu tveimur áratugum fjölgaði þeim ríkjum heims sem öfluðu gagna um kvennamorð sem framin voru í nánum samböndum eða af nánum ættingjum. Fjöldi þeirra náði hámarki árið 2020, en þá bjuggu 75 ríki yfir slíkum upplýsingum. Þeim hefur þó fækkað um helming síðan þá.
Nú stendur yfir 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið hefst 25. nóvember (á alþjóðlegum baráttudegi gegn kynbundnu ofbeldi) og lýkur 10. desember, á alþjóðlega mannréttindadeginum.
Yfirskrift alþjóðlega átaksins í ár er Every 10 Minutes, a woman is killed. #NoExcuse. UNiTE to End Violence against Women. Árhersla átaksins er á kvennamorð (e. femicide) sem eru hrottalegasta og grófasta birtingarmynd ofbeldis gegn konum og stúlkum.

