
Þolendum kynferðisofbeldis hefur fjölgað í Súdan.
Mikill fjöldi einstaklinga í Súdan hefur leitað aðstoðar eftir kynferðisofbeldi frá því að stríðið hófst í apríl 2023. Aðsókn í þjónustu fyrir þolendur kynferðisofbeldis jókst um 288% á milli ára. Þá hefur tilkynningum um stríðstengd kynferðisbrot (e. conflict related sexual violence) fjölgað á þeim svæðum hvar átökin eru sem hörðust. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu UN Women um stöðu kvenna og stúlkna í Súdan.
Nauðgunum og öðru kynferðisofbeldi hefur markvisst verið beitt sem stríðsvopni frá því að átök brutust út í Súdan. Nauðgunum var einnig beitt gegn fólki í átökum sem áttu sér stað árin 2002, 2006 og 2019. Fjölmörg dæmi eru einnig um að karlmönnum og drengjum sé nauðgað.
Grófu ofbeldi beitt markvisst gegn fólki
Ný skýrsla UN Women um stöðu kvenna og stúlkna á átakasvæðum í Súdan sýnir að grófu kynferðisofbeldi er markvisst beitt gegn fólki með það fyrir augum að brjóta á bak mótspyrnu og andstöðu við vígasveitir sem berjast um völd í landinu.
Skýrslan sýnir að:
- Nauðgunum er beitt sem vopni af vígamönnum er þeir ráðast inn í þorp eða á heimili fólks og á sér stað samhliða íkveikjum, drápum og mannránum
- Fjöldi tilfella þar sem hópnauðgunum er beitt
- Nauðganir eiga sér oft stað fyrir framan aðra fjölskyldumeðlimi. Dæmi eru um að feður, mæður og börn séu myrt ef þau reyna að stöðva nauðgunina
- Hrottalegu ofbeldi beitt í kjölfar nauðgana, þar með taldar limlestingar, barsmíðar og í sumum tilfellum morð
- Konum og stúlkum sem flúið hafa átökin er nauðgað á meðan á flóttanum stendur, þar með talið við eftirlitsstöðvar og á meðan þær ferðast frá átakasvæðum í leit að öryggi
- Konum og stúlkum er rænt af heimilum sínum og þær þvingaðar í hjónabönd með vígamönnum og seldar mansali
- Þar sem algjört niðurbrot innviða og samfélags hefur átt sér stað víða, hefur orðið aukning í því sem Sameinuðu þjóðirnar kalla „opportunistic rapes“. Konum og stúlkum hefur m.a. verið nauðgað á leið til og frá vatnsbólum
- Dæmi eru um að konum og stúlkum á flótta hafi verið rænt og þær seldar í ánauð í öðrum ríkjum
- Konur og stúlkur sem flúið hafa átökin í Súdan til annarra ríkja eru berskjaldaðar fyrir kynbundnu ofbeldi. Mörg dæmi eru um að einstaklingar nýti sér neyð þeirra, m.a. með því að nauðga þeim í skiptum fyrir mat eða húsnæði
- Konur og stúlkur sem tilheyra minnihlutahópum eru í sérstakri hættu, En einnig konur í stjórnmálum, mannréttindafrömuðir, blaðakonur, heilbrigðisstarfsfólk, mannréttindalögfræðingar, erlent hjálparstarfsfólk, fatlaðar konur og hinsegin fólk
Þolendur glíma við áfallastreituröskun og kvíða
Gróft og útbreitt kynbundið ofbeldi hefur haft hörmulegar afleiðingar á súdanskar konur og stúlkur, fjölskyldur þeirra og súdanskt samfélag í heild. Ofbeldið hefur tekið gríðarlegan toll á andlega og líkamlega heilsu þeirra og mun hafa áframhaldandi og langvarandi afleiðingar fyrir landið.
Fjöldi þolenda lýsa því að þær glími við áfallastreituröskun, mikinn kvíða, langvarandi svefnleysi, þunglyndi og endurlit. Fólk sem sinnir þjónustu til þolenda hefur greint frá því að margar glími við sjálfsvígshugsanir. Fjölskyldumeðlimir sem orðið hafa vitni að nauðgunum glíma jafnframt við áfallastreituröskun, svefnleysi, martraðir og kvíða.
Í Súdan ríkir mikil þolendaskömm í kjölfar kynferðisofbeldis og hafa þolendur oft engan stuðning frá fjölskyldu og/eða maka í kjölfar ofbeldis. Óttinn við útskúfun eykur enn frekar á þunglyndi og kvíða þolenda. Þeim sem hefur verið útskúfað búa að auki við efnahagslegt óöryggi.
Vopnahlé nauðsynlegt
Vegna ástandsins í Súdan hefur reynst erfitt að veita þolendum viðunandi þjónustu, þar með talið heilbrigðisþjónustu. En 70% allra sjúkrastofnana í Súdan eru óstarfhæfar vegna átakanna og þær sem enn eru starfandi gera svo við takmarkaða getu.
UN Women í Súdan hefur stutt við þolendur kynbundins ofbeldis með því að úthluta sæmdarsettum til kvenna og stúlkna og með því að koma á fót öruggum rýmum (e. safe spaces). Í þessum rýmum geta þolendur sótt sálrænan stuðning, áfallahjálp og fengið öruggt skjól á meðan unnið er úr áföllunum.
UN Women hefur einnig stutt við efnahagslega valdeflingu kvenna og stúlkna. Þetta er gert með því að veita konum starfs- og iðnþjálfun, atvinnutækifæri og fjárstuðning.
Svo hægt sé að efla þjónustu til þolenda í Súdan er nauðsynlegt að koma á langvarandi vopnahléi og auka fjármagn til verkefna er miða að því að þjónusta þolendur. Þá er gríðarleg þörf á að efla heilbrigðisþjónustu og fjölga athvörfum fyrir þolendur.

