Ofbeldi gegn konum og stúlkum er heimsfaraldur, samkvæmt Sameinuðu þjóðunum er það útbreiddasta mannréttindabrot heims Óhætt er að segja að það ríki neyðarástand í stórborgum víðsvegar um heiminn þar sem konur og stúlkur eiga erfitt með að ferðast til og frá vinnu eða sækja skóla vegna ótta við ofbeldi og áreitni í almenningsrýmum. Meira að segja í öruggustu borgum heims eins og Reykjavík verða konur fyrir ofbeldi af ýmsu tagi.
Vissir þú að..
• 99,3 prósent kvenna og stúlkna á þéttbýlissvæðum í Egyptalandi hafa upplifað kynferðislega áreitni og um helmingur þeirra verður fyrir áreitni daglega.
• 95 prósent kvenna í Nýju Delí á Indlandi finnst þær ekki öruggar á götum úti. 73 prósent þessara kvenna upplifa ekki einu sinni öryggi í sínu nánasta umhverfi.
• 43 prósent kvenna í London höfðu upplifað kynferðislega áreitni á götum úti á síðastliðnu ári.
• Um 70 prósent íslenskra kvenna upplifa sig óöruggar í miðborg Reykjavíkur að næturlagi.
UN Women vinnur að því að draga úr ofbeldi gegn konum og börnum í borgum víðs vegar um heiminn. Staðreyndin er sú að ofbeldi gegn konum, stúlkum og börnum í almenningsrýmum er hnattrænt vandamál og víða í borgum heimsins er ofbeldi daglegt brauð. Þvert á þjóðir hefur aldur, samfélagsstaða og klæðaburður engin áhrif á hvort konur eða stúlkur verði fyrir kynferðisofbeldi eða áreitni á almenningssvæðum.
Einnig er unnið að því að bæta aðgengi þolenda ofbeldis að aðstoð og þjónustu. Lausnirnar eru oft ódýrar en áhrifaríkar. Bætt götulýsing og lýsing á strætisvagnastöðvum og almenningsklósettum eru skilvirkar lausnir auk þess að breikka gangstéttir líkt og gert var í Nýju-Delí. Í Port Moresby í Papúa Nýju Gíneu hefur verið komið upp sérstökum kvennastrætóum á álagstímum til að forðast áreiti karlmanna í troðnum vögnum. Í Rio de Janeiro var búið til sérstakt snjallsímaforrit til að veita þolendum ofbeldis í fátækrahverfum upplýsingar um næstu lögreglustöð, neyðarmóttöku og kvennaathvarf. Aukið öryggi dregur ekki einungis úr ofbeldi heldur eykur atvinnuþátttöku kvenna, hagur fjölskyldna vænkar sem og samfélagsins alls.
Vilt þú taka þátt í að skapa konum og börnum um allan heim öruggara líf án ótta við ofbeldi?

