
Asil Al Masri með FO-húfuna 2024/ Mynd: Wyom Studios
Sala á FO-húfunni 2024 aflaði 8.118.170 króna til verkefna UN Women í Súdan. UN Women á Íslandi þakkar öllum þeim sem studdu við verkefnið með kaupum á FO-húfunni. Öryggismiðstöðin var bakhjarl herferðarinnar og stóð undir öllum framleiðslukostnaði sem gerði UN Women á Íslandi mögulegt að senda svo háa fjárhæð til Súdan. FO-herferðin hefur frá upphafi stutt við verkefni sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi og styðja við þolendur.
Í lok síðasta árs barst ný skýrsla frá UN Women um stöðu mála í Súdan. Þar kom í ljós að ásókn í þjónustu fyrir þolendur kynferðisofbeldis jókst um 288% á milli ára. Þá hefur tilkynningum um stríðstengd kynferðisbrot (e. conflict related sexual violence) fjölgað á þeim svæðum hvar átökin eru sem hörðust.
Gróft ofbeldi útbreitt í Súdan
Nauðgunum og öðru kynferðisofbeldi hefur markvisst verið beitt sem stríðsvopni frá því að átök brutust út í Súdan. Nauðgunum var einnig beitt gegn fólki í fyrri átökum, árin 2002, 2006 og 2019. Fjölmörg dæmi eru einnig um að karlmönnum og drengjum sé nauðgað.
Gróft og útbreitt kynbundið ofbeldi hefur haft hörmulegar afleiðingar á súdanskar konur og stúlkur, fjölskyldur þeirra og súdanskt samfélag í heild. Ofbeldið hefur tekið gríðarlegan toll á andlega og líkamlega heilsu þeirra og mun hafa áframhaldandi og langvarandi afleiðingar fyrir landið.
Fjöldi þolenda lýsa því að þær glími við áfallastreituröskun, mikinn kvíða, langvarandi svefnleysi, þunglyndi og endurlit. Fólk sem sinnir þjónustu til þolenda hefur greint frá því að margar glími við sjálfsvígshugsanir. Fjölskyldumeðlimir sem orðið hafa vitni að nauðgunum glíma jafnframt við áfallastreituröskun, svefnleysi, martraðir og kvíða.
UN Women í Súdan hefur stutt við þolendur kynbundins ofbeldis með því að úthluta sæmdarsettum til kvenna og stúlkna og með því að koma á fót öruggum rýmum (e. safe spaces). Í þessum rýmum geta þolendur sótt sálrænan stuðning, áfallahjálp og fengið öruggt skjól á meðan unnið er úr áföllunum.
FO 2025
Öryggismiðstöðin verður áfram bakhjarl FO-herferðarinnar sem í ár mun safna fjármunum til stuðnings konum og stúlkum í Afganistan. Meira en þrjú ár eru liðin frá því að talíbanar tóku völdin í Afganistan. Síðan þá hafa konur og stúlkur verið sviptar öllum grundvallarmannréttindum sínum, þ.m.t. réttinum til náms. UN Women á Íslandi er gríðarlega stolt af því að geta tekið höndum saman með Öryggismiðstöðinni í annað sinn og með því stutt við konur og stúlkur í Afganistan.

