2,5 milljónir stúlkna geta ekki sótt nám vegna stríðsins

Heim / Dæmisögur / 2,5 milljónir stúlkna geta ekki sótt nám vegna stríðsins

2,5 milljónir stúlkna á skólaaldri geta ekki sótt nám vegna stríðsins.

Vopnuð átök hafa geisað í Súdan nánast linnulaust frá árinu 2003. Þann 15. apríl 2023 braust út ný hrina átaka á milli SAF og RSF, sem berjast um völd í landinu. Stríðið í Súdan hefur stundum verið nefnt „gleymda stríðið“ því átökin hafa fallið í skuggann af öðrum átökum. Meira en 11 milljónir hafa neyðst til að flýja heimili sín í kjölfar átakanna. Meira en 2,5 milljónir stúlkna geta ekki sótt nám vegna stríðsins.

„Eftir að stríðið braust út í Al-Jazirah, með hrakandi lífskjörum, stöðugleika og öryggi, neyddist fjölskylda mín til að taka þá erfiðu ákvörðun að flýja. Tilfinningunni sem umlukti mig við tilhugsunina um flótta er aðeins hægt að lýsa sem gríðarlega neikvæðri. Ég var á báðum áttum með að verða áfram í heimalandi mínu og mæta stríðinu eða að flýja í þeim tilgangi að bjarga lífi okkar og andlegri heilsu.“ Svo lýsir tvítug stúlka frá Al Jazirah í Súdan reynslu sinni af stríðinu. Hún dvelur nú í Egyptalandi þar sem hún hefur stöðu flóttamanns.

 

Saknar minnstu smáatriða

„Við flúðum til Egyptalands þremur vikum eftir að stríðið braust út. Líf mitt hefur tekið gríðarlegum stakkaskiptum síðan þá. Ég sakna minnstu smáatriða frá heimili mínu og þeirra þæginda sem einkenndu líf mitt fyrir stríð. Ég sakna hversdagsins og þess að vera í háskólaumhverfinu, þar sem ég upplifði tilgang og fann hvernig sjálfsöryggi mitt óx. Í stuttu máli sakna ég öryggisins og andlegs stöðugleika. Á tímum stríðsins hef ég glímt við fjölda áskorana. Faðir minn lét lífið í Khartoum og við fengum ekki fregnir af því fyrr en fjórum dögum síðar því það var engin nettenging. Það er afar erfitt að afla helstu nauðsynja eins og matar og vatns. Stundum legg ég líf mitt í hættu við að verða okkur úti um þær,“ segir stúlkan, en af virðingu hefur nafni hennar ekki verið deilt.

 

FO 2024 til stuðnings verkefna UN Women í Súdan

Verkefni UN Women í Súdan hafa breyst umtalsvert með tilkomu stríðsins. Þau miðast nú að mestu leyti að því að veita kvenmiðaða mannúðar- og neyðaraðstoð. Meira en 11 milljónir hafa neyðst til að flýja heimili sín í kjölfar átakanna. Vannæring er vaxandi vandamál í öllum héruðum Súdans, um 70% heilbrigðisstofnana eru óstarfhæfar og 2/3 íbúa landsins hafa ekki greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Meira en 2,5 milljónir stúlkna, um 74% allra stúlkna á skólaaldri, geta ekki sótt nám vegna stríðsins.

Meðal verkefna UN Women í Súdan er rekstur miðstöðva fyrir konur og stúlkur. Þar geta þær sótt nauðsynlega þjónustu og fengið sálrænan stuðning. Þá styður UN Women í Súdan við kvenrekin félagasamtök sem styðja meðal annars við þolendur ofbeldis.

Með kaupum á FO-húfunni 2024 styður þú við konur og stúlkur í Súdan en allur ágóði rennur óskertur til verkefna UN Women í landinu. Húfan var hönnuð í samstarfi við fatahönnuðinn Helgu Lilju Magnúsdóttur sem hannar undir merkjunum Helicopter og BAHNS og er framleidd af VARMA. Verkefnið er kostað af Öryggismiðstöðinni, sem er bakhjarl FO-herferðarinnar í ár.

Related Posts