
Á alþjóðlegum degi mannúðar, þann 19. ágúst, heiðrum við öll þau sem hætta lífi sínu við mannúðarstörf og – allt of oft – fórna lífi sínu til að hjálpa öðrum. Við heiðrum kvenleiðtoga og viðbragðsaðila sem standa á fremstu víglínu. Oft standa þau frammi fyrir tvöfaldri hættu: Þau eru skotmörk vegna starfs síns og fyrir það hver þau eru. Við vottum þeim sem hafa látið lífið við mannúðarstörf virðingu okkar og hyllum þau sem halda starfi sínu áfram ótrauð – þrátt fyrir hættuna.
Árið 2025 er ákallið #ActForHumanity brýnna en nokkru sinni fyrr. Mannúðarstarfi er ógnað vegna vaxandi ofbeldis, minnkandi fjármagns og vanefndra loforða um vernd.
Aldrei hefur fleira mannúðarstarfsfólk látið lífið
Síðasta ár lést fleira mannúðarstarfsfólk en nokkru sinni fyrr og árásir á það jukust verulega. Þessi dauðsföll eru ekki slys. Þau orsakast af kerfisbundnum misbrestum: Skorti á alþjóðlegum refsiaðgerðum vegna stríðsglæpa og virðingarleysi fyrir alþjóðlegum mannúðarlögum.
Ofan á bætist skortur á fjármagni til hjálparstarfs, sem hefur aldrei verið minna. Niðurskurður til kvenna er gríðarlegur. Samkvæmt könnun UN Women frá árinu 2025, sem náði til 44 átakasvæða, höfðu 72% kvennasamtaka sagt upp starfsfólki. Meira en helmingur hafði neyðst til að fresta verkefnum. Þetta kemur í veg fyrir að hægt sé að veita fólki nauðsynlega grunnþjónustu og eykur hættu á kynbundnu ofbeldi. Auk þess leggur þetta enn meiri byrðar á konur vegna ólaunaðra umönnunarstarfa og skerðir félagslega þjónustu og aðstoð sem mörg treysta á.
Kallað eftir tafarlausum aðgerðum stjórnvalda
Við getum ekki litið fram hjá þessu ástandi og leyft því að verða hið nýja norm. Við köllum eftir tafarlausum og afgerandi aðgerðum stjórnvalda um að:
- Vernda mannúðarstarfsfólk – þar á meðal konur sem starfa á fremstu víglínu og verða fyrir markvissu ofbeldi – og þá óbreyttu borgara sem verið er að þjóna
- Fjármagna þá líflínu sem mannúðarstarf er – tryggja fjármagn til kvenrekinna félagasamtaka sem eru gjarnan fyrst á vettvang og þau síðustu til að yfirgefa hann
- Tryggja fulla þátttöku og forystu kvenna í ákvarðanatöku í mannúðarmálum og viðurkenna að þær leika lykilhlutverk þegar kemur að árangursríkum viðbragðsáætlunum.
Bregðist við strax – heimurinn fylgist með.
#ActForHumanity

