Yfirlýsing SÞ í tilefni alþjóðlegs dags gegn mansali: Konur og stúlkur í mestri hættu á að að verða þolendur mansals

Heim / Fréttir / Yfirlýsing SÞ í tilefni alþjóðlegs dags gegn mansali: Konur og stúlkur í mestri hættu á að að verða þolendur mansals
Mynd úr safni UN Women/Ryan Brown

Í dag er alþjóðlegur dagur gegn mansali. Að mati Sameinuðu þjóðanna er mansal sú tegund skipulagðrar glæpastarfsemi sem vex nú hraðast á heimsvísu. Á hverju ári verða hundruð þúsunda einstaklinga – aðallega konur og stúlkur – fórnarlömb mansals. Samráðshópur Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir gegn mansali (The Inter-Agency Coordination Group against Trafficking in Persons – ICAT) hefur sent frá sér yfirlýsingu í tilefni dagsins og varpar þar ljósi á alvarleika málsins. Hópurinn ítrekar áherslur sínar og tilmæli til ríkja heims, sem jafnframt eru hvött til að taka höndum saman í baráttunni gegn mansali og skipulagðri glæpastarfsemi.

Mansal elur á skipulagðri glæpastarfsemi og ógnar alþjóðlegum friði og mannréttindum

Mansal er nú orðinn burðarás í alþjóðlegri skipulagðri glæpastarfsemi og ógnar lýðræði, mannréttindum, réttaröryggi og öryggi þjóða. Samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna (UNODC Global Report on Trafficking in Persons 2024) eru 74% tilkynninga um mansal tengdar starfsemi skipulagðra glæpasamtaka.

Viðkvæmir hópar í mestri hættu

Konur og stúlkur eru í mestri hættu á að að verða þolendur mansals. Þetta á sérstaklega við þegar um er að ræða kynferðislega misnotkun og nauðungarvinnu. Börn sem eru á vergangi, án fylgdar eða úr jaðarsettum hópum verða sífellt oftar skotmörk þar sem gerendur hagnýta sér viðkvæma stöðu þeirra og neyð.

Sama á við um aðra viðkvæma hópa, líkt og fólk á flótta og farandfólk. Þessir hópar neyðast oft til að ferðast um óformlegar og ótryggar leiðir þar sem lítil sem engin gæsla eða lagaleg vernd er til staðar. Skipulagðir glæpahópar starfa gjarnan meðfram slíkum leiðum og nýta sér skort á öryggi og vernd til að græða á neyð annarra. Afleiðingin er sú að fólk á flótta og farandfólk verður sérstaklega berskjaldað fyrir ofbeldi, fjárkúgun og misnotkun.

Í fjölmörgum tilvikum skarast smygl og mansal. Þá eru einstaklingar sem upphaflega er smyglað yfir landamæri síðar hnepptir í mansal. Það getur verið meðal annars í formi nauðungarvinnu, kynferðislegrar misnotkunar eða þvingaðrar þátttöku í glæpastarfsemi.

Mansal er skipulögð glæpastarfsemi sem virðir ekki landamæri

Mansal tengist annarri alþjóðlegri glæpastarfsemi, eins og netglæpum, fíkniefna- og vopnasmygli og í sumum tilfellum jafnvel fjármögnun hryðjuverka. Þannig myndast vítahringur sem grefur undan stjórnsýslu ríkja og réttaröryggi, ýtir undir kynbundið ofbeldi og viðheldur kerfislægum ójöfnuði milli kynja.

Mansal blómstrar þar sem réttarríkið er veikt, spilling ríkir, og verndarkerfi bregðast. Ástandið er sérstaklega alvarlegt á átakasvæðum og þar sem ríkir mikil neyð. Í slíkum aðstæðum, sérstaklega þar sem uppreisnar- og/eða hryðjuverkahópar hafa yfirráð yfir ákveðnum svæðum, getur mansal bæði verið tekjulind og aðferð til að valda ótta. Slíkt felur oft í sér kynferðislega misnotkun, nauðungarvinnu og barnahernað.

Heildstæð, alþjóðleg og samþætt stefna nauðsynleg

Mansal er glæpur sem framinn er bæði innan ríkja og þvert á þau. Það kallar á aukið fjármagn til málaflokksins og þverfaglegt samstarf milli stjórnvalda, borgaralega samfélagsins, einkageirans og alþjóðastofnana. Sérstök áhersla er lögð á samstarf í forvarnar- og rannsóknarvinnu og þegar kemur að því að draga gerendur til ábyrgðar.

Í ákalli sínu til ríkja heims minnir samráðshópurinn á alþjóðlegar skuldbindingar ríkja um mannréttindi almennt. Þá leggur hópurinn áherslu á að aðgerðaáætlun gegn mansali taki mið af kyni, aldri og viðkvæmri stöðu þolenda.

Samráðshópurinn kallar eftir þverfaglegri samvinnu og markvissri stefnumótun sem miðar meðal annars að því að:

  • Bregðast við mansali og koma í veg fyrir það með heildstæðum aðgerðum sem taka á undirliggjandi áhættuþáttum eins og fátækt, mismunun og neyð fólks;
  • Efla samstarf milli aðila sem vinna gegn mansali, skipulagðri glæpastarfsemi og fjármögnun hryðjuverka;
  • Tryggja að konur, börn og aðrir viðkvæmir hópar, þar á meðal fólk á flótta og farandfólk, njóti sérstakrar verndar og aðgengis að barnvænum og mannúðlegum úrræðum;
  • Tryggja réttindi fólks þegar kemur að fólksflutningum, með áherslu á öruggar og lögmætar leiðir fyrir fólk á flótta og farandfólk, mannsæmandi vinnu og sanngjörn laun óháð lagalegri stöðu;
  • Virða meginregluna um refsileysi þolenda og tryggja að þolendur, óháð stöðu, njóti réttlætis, verndar og stuðnings – og að raddir þeirra heyrist við mótun stefnu og úrræða.

Hér má lesa yfirlýsingu ICAT í heild sinni.

Related Posts