Þegar stríðsátök og hamfarir geisa, ýtir það undir og margfaldar þann ójöfnuð og þá fordóma sem voru til staðar innan samfélagsins. Jaðarsettir hópar upplifa því enn meiri fordóma, jaðarsetningu, ofbeldi og fátækt en á friðartímum. Þá eru ákveðnir hópar sérstaklega berskjaldaðir þegar átök og hamfarir eiga sér stað, m.a. fólk með fatlanir, aldraðir, ekkjur og einstæðar mæður og fólk sem tilheyrir minnihlutahópum.

Jarðskjálftinn sem reið yfir Haítí þann 14. ágúst 2021 hefti mjög för kvenna með fatlanir sem og aldraðra. Þessir einstaklingar áttu gríðarlega erfitt með að komast á milli staða og nálgast vatn, mat og aðrar nauðsynjar. Í átökunum í Úkraínu áttu einstaklingar með fatlanir og aðrir með skerta hreyfigetu erfitt með að leita skjóls í neðanjarðarbyrgjum og verða sér úti um nauðsynjar. Þessir hópar gleymast því miður allt of oft þegar neyðaraðstoð er veitt.

Ofbeldi gegn hinsegin fólki margfaldast þegar átök geisa og verður það gjarnan fyrir fordómum þegar aðstoð er veitt. Þá er nánast aldrei tekið tillit til þarfa þeirra eða öryggis þegar neyðarskýli eða flóttamannabúðir eru sett upp, m.a. með tilliti til salernis- og þvottaaðstöðu.

Heimilislaust, fólk með fíknivanda og konur í vændi verður jafnframt útundan þegar stríð brýst út og verður fyrir miklum fordómum. Erfitt er að nálgast þessa einstaklinga til að veita þeim upplýsingar um aðstoð og stöðu mála.

Konur sem tilheyra minnihlutahópum búa flestar vel undir fátækramörkum og draga fram lífið á minna en 1,90 bandaríkjadölum.

Fjölskylda sem flúði heimili sitt í Idlib í Sýrlandi. Vegna Mikillar úrkomu og drullusvað þarf fjölskyldufaðirinn að bera aldraða móður sína á milli staða.

Hvað gerir UN Women til að tryggja aðstoð til jaðarsettra hópa?

  • UN Women vinnur eftir þeirri hugsjón að enginn verði útundan (e. leave no one behind) og á hún einnig við á tímum stríðsátaka og hamfara. UN Women veitir neyðaraðstoð til jaðarsettra hópa og tryggir að þörfum þeirra sé mætt
  • UN Women veitir jaðarsettum hópum örugg rými og sinnir þarfagreiningum svo hægt sé að mæta þörfum allra. Án góðra þarfagreininga halda konur og jaðarsettir hópar áfram að vera ósýnilegir þegar neyðaraðstoð er veitt. Það er gríðarlega mikilvægt að hlusta á raddir þeirra og þarfir svo hægt sé að bregðast við þeim
  • UN Women vekur athygli á málefnum jaðarsettra hópa og berst fyrir réttindum þeirra m.a. með því að þrýsta á lagabreytingar
  • UN Women styður við athvörf og verkefni sem sinna jaðarsettum hópum með fjárveitingum og vinnur náið með félagasamtökum sem vinna á þessum vettvangi
  • UN Women styður við atvinnutækifæri hinsegin fólks með starfsþjálfun, fjárveitingum og fræðslu

Kvenaathvarf rekið af Roma fólki í Moldóvu hýsir Roma fólk á flótta frá Úkraínu. Roma fólk er sá minnihlutahópur í Evrópu sem verður fyrir hvað mestum fordómum.