Þar sem viðbragðsaðilar, starfsfólk félagasamtaka og þeir sem stýra ákvarðanatökum eru oftar en ekki karlmenn, gleymast grunnþarfir kvenna og stúlkna iðulega þegar neyðaraðstoð er veitt og flóttamannabúðum er komið upp. Einföld atriði á borð við staðsetning salernis- og þvottaaðstöðu getur aukið öryggi kvenna og stúlkna til muna.

Illa upplýst salerni sem staðsett eru í útjaðri flóttamannabúða eru hættuleg konum og stúlkum, sérstaklega eftir að rökkva tekur. Mörg dæmi eru um að konur og stúlkur þori ekki að létta á sér eftir að myrkva tekur sem getur leitt til ýmisa heilsufarlegra vandamála. Staðsetning salernisaðstöðu þarf jafnframt að vera aðgengileg þeim sem  eru með skerta hreyfigetu.

Í neyðarskýlum er mikilvægt að aðgreind svæði séu til staðar til að tryggja öryggi kvenna og stúlkna og annarra jaðarsettra hópa. Sameiginleg salernisaðstaða eykur líkur á kynbundnu ofbeldi og það gera sameiginleg svefnrými einnig. Konur með ungbörn og börn á brjósti þurfa jafnframt afmörkuð rými til að geta sinnt börnum sínum og gefið brjóst, en víða þykir ekki viðeigandi að konur gefi brjóst nema í einrými. Bað- og þvotta aðstaða þarf einnig að vera aðskild og gera þarf ráð fyrir baðaðstöðu handa transfólki og kynsegin fólki til að tryggja öryggi þeirra.

Annað sem gleymist oft að hugsa út í er aðgengi að matarúthlutunum og innihald slíkra pakka. Matarpakkarnir eru oftast of þungir fyrir margar konur, fólk með fatlanir og aldraða til að bera langar vegalengdir. Einstæðar konur með ung börn eiga jafnframt erfitt með að standa lengi með börn sín í röð eftir matarúthlutunum. Innihald matarpakka hefur oft á tíðum verið einsleitt og ekki hefur verið tekið mið af þörfum allra; sumir pakkar þurfa að innihalda þurrmjólk og ungbarnamat og taka tillit til næringarþarfa barna og barnshafandi kvenna.

Það er áætlað að um 50 milljónir kvenna og stúlkna séu á flótta í heiminum í dag vegna stríðsátaka, ofsókna eða náttúruhamfara. Meira en 5 milljónir Úkraínumanna hafa flúið heimili sín síðan Rússland hóf innrás í landið þann 24. febrúar. 90% þeirra eru konur og börn. Tíðar- og hreinlætisvörur, verkja- og hitastillandi lyf, bleiur, þvottapokar, skilríki, sængur og koddar og hlýr fatnaður er oft eitthvað sem gleymist að taka með þegar lífið liggur við. Það er því mikilvægt að neyðarpakkar innihaldi þessar vörur þegar aðstoð er veitt.

Það er einnig  nauðsynlegt að tryggja börnum áframhaldandi menntun og daggæslu og mæðrum þeirra aðgengi að sálrænni aðstoð og launaðri atvinnu svo þær geti séð fyrir börnum sínum.

Sýrlenskir Kúrdar á flótta frá Sýrlandi reyna að komast í öruggt skjól yfir landamærin til Tyrklands. Tyrkland hýsir 3 milljónir á flótta frá Sýrlandi.

Hvað gerir UN Women til að tryggja að grunnþarfir kvenna á flótta séu uppfylltar?

  • UN Women safnar kynjuðum gögnum svo hægt sé að bregðast við þörfum fólks
  • UN Women er ráðgefandi stofnun þegar kemur að málefnum kvenna á flótta. Stofnunin hefur vakið athygli á mikilvægi þess að konur hafa aðgang að öruggri salernis- og baðaðstöðu og að vatnsból séu mönnuð friðargæsluliðum til að tryggja öryggi kvenna
  • UN Women hefur unnið að því að barnshafandi konur, einstæðar mæður, fólk með fatlanir og aðrir jaðarsettir hópar fái úthlutað matarpökkum til sín. Jafnframt að matarpakkarnir taki tillit til næringarþarfa barna og barnshafandi kvenna
  • UN Women rekur griðarstaði í flóttamannabúðum þar sem konur á flótta hljóta starfsþjálfun,sálræna aðstoð, fjárhagsaðstoð og daggæslu fyrir börnin sín

Konur í flóttamannabúðum í Kamrún sækja neysluvatn.