Fáum ríkjum heims hefur tekist að jafna hlut kvenna á við karla þegar kemur að stjórnmálum og áhrifastöðum. Lög og reglur sem mismuna fólki eftir kyni og hefðir skerða tækifæri kvenna á fullri þátttöku í stjórnmálum og opinberu lífi. Haldi þróunin áfram á sama hraða og nú, verður kynjajafnrétti á æðstu stöðum ekki náð fyrr en eftir 130 ár. Þessi mismunun hindrar konur t.d. frá því að taka þátt í stjórnmálum, lagasetningum og sáttar- og friðarviðræðum á átakatímum, sem þykir þó lykilforsenda þess að varanlegur friður náist.
Árið 2020 voru konur aðeins 23% þeirra er tóku þátt í friðarviðræðum sem Sameinuðu þjóðirnar leiddu eða höfðu aðkomu að. Þetta hlutfall væri lægra ef ekki væri fyrir jafnréttisstefnu Sþ í þessum efnum. Sama ár voru konur aðeins 5,2% friðargæsluliða í verkefnum Sameinuðu þjóðanna. Þetta lága hlutfall endurspeglar gríðarlega lágt hlutfall kvenna í herjum(innan við 10%). Öryggi kvenna á átakasvæðum er þó ekki tryggt nema með því að fjölga konum í friðargæslusveitum, en mörg dæmi eru um að friðargæsluliðar nauðgi konum sem þeir eiga að vernda eða þvingi þær til samræðis í skiptum fyrir vistir. Neyðar- og flóttamannabúðir án viðunandi gæslu geta verið stórhættulegar konum og börnum og eykur líkur á mansali, kynbundnu ofbeldi og vændi.
Fulltrúar kvenréttindafélaga í Kongó ræða hvernig megi fjölga kvenframbjóðendum í kosningum 2023.
Hvað gerir UN Women til að tryggja að konur eigi sæti við samningaborðið?
- UN Women veitir konum leiðtogaþjálfun, styður við kvenkyns frambjóðendur með því að veita þeim vernd, þjálfun og fjárstuðning (ólíkt körlum, hafa konur í sumum ríkjum ekki efni á því að bjóða sig fram sökum takmarkaðra réttinda)
- UN Women veitir fræðslu til almennings og stjórnvalda um mikilvægi þess að jafna hlut kvenna og annarra hópa í stjórnmálum
- UN Women veitir námsstyrki til stúlkna svo þær geti menntað sig
- UN Women hefur hvatt til þess að kynjakvóti sé settur á allar friðarviðræður sem Sameinuðu þjóðirnar koma að
- Fjölga kvenkyns friðargæsluliðum og veita öllum friðargæsluliðum þjálfun
- Tryggja að konur séu á meðal viðbragðsaðila á átaka- og hamfarasvæðum. UN Women veitir konum á dreifbýlum svæðum þjálfun í að greina hættumerki og bregðast við þeim og í skyndihjálp.
- UN Women berst fyrir því með ýmsum hætti að konur hljóti störf við uppbyggingu eftir átök og hamfarir og séu ekki útilokaðar frá atvinnuþátttöku
Lögreglukonur í Bangladesh sinna Rohyngja konum í Coz bazar.