Takmarkað aðgengi að upplýsingum getur haft gríðarlega neikvæð áhrif á líf og heilsu kvenna á flótta. Upplýsingar um öruggar leiðir burt af átakasvæðum (e. humanitarian corridor), hvar og hvernig megi nálgast þjónustu og aðstoð og upplýsingar um stöðu mála eru nauðsynlegar svo fólk á flótta geti tekið upplýstar ákvarðanir og sótt sér þá þjónustu sem í boði er. Jaðarsettir hópar eiga gjarnan erfiðara með að nálgast greinagóðar upplýsingar, m.a. vegna ólæsis, tungumálaörðugleika og vegna þess að þau hafa ekki aðgengi að símum, útvarpi eða öðrum upplýsingamiðlum. Rangar eða misvísandi upplýsingar leynast víða, sérstaklega á netinu, og því þarf að leggja áherslu á að veita fólki réttar upplýsingar.
Í flóttamannabúðum og neyðarskýlum þarf að taka á móti konum á flótta og veita þeim strax upplýsingar um réttindi þeirra á nýjum stað, næstu skref, þá þjónustu sem í boði er og þær samfélagslegu reglur sem eru við lýði í nýju samfélagi. Upplýsingarnar þurfa helst að vera aðgengilegar á móðurmálinu og þeim þarf að vera miðlað á þann hátt að þær séu aðgengilegar þessum tiltekna hóp kvenna (ef þær eru ólæsar þarf að miðla upplýsingunum í persónu og á móðurmáli eða í myndmáli). Fólk sem flýr átök er oft í miklu áfalli og á erfitt með að meðtaka mikið magn upplýsinga – framsetningin þarf því að vera einföld og þannig að hægt sé að nálgast upplýsingarnar hvenær sem er.
Konur og börn bíða eftir upplýsingum um lestarferðir burt frá Kyiv.
Hvað gerir UN Women til að tryggja upplýsingar og fræðslu til kvenna á flótta?
- UN Women rekur „one stop shop“ miðstöðvar sem eiga að vera fyrsti viðkomustaður kvenna á flótta þar sem þær hljóta þjónustu og upplýsingar um næstu skref. Konurnar eiga ekki að þurfa að leita á marga staði eftir upplýsingum, heldur fá þær allar á einum stað
- UN Women sinnir þarfagreiningum. Þetta er mikilvægt svo hægt sé að koma til móts við þá hópa sem þurfa á aðstoð að halda á þeirra forsendum
- UN Women tryggir að túlkar séu af öllum kynjum svo hægt sé að miðla upplýsingum til allra hópa og á þeirra móðurmáli, vegna samfélagslegra þátta veigra sumar konur sig við því að tjá sig um persónuleg málefni í návist karlamanna
- UN Women veitir viðbragðsaðilum þjálfun í móttöku kvenna á flótta
- UN Women styður við kvenrekin grasrótarsamtök. Upplýsingaflæði þarf að vera í báðar áttir. Konur á flótta eiga að geta komið áhyggjum sínum og þörfum á framfæri í öruggan hátt og þannig að brugðist sé við þeim. Þær eiga að geta tilkynnt ofbeldi, fordóma og misbresti til þjónustuaðila
Rohingja konur í Cox´s Bazaar flóttamannabúðunum í Bangladesh punkta niður upplýsingar.