„Verkefnið hefur breytt lífi okkar“

Heim / Fréttir / „Verkefnið hefur breytt lífi okkar“

OrangeTheWorld Turkey EDVisit UNTF ACEV Dec2015 UNWLOW1341 675pxWideUN Women styrkir samtökin Istanbul Father Support Association í Tyrklandi. Um er að ræða framúrstefnulegt verkefni sem miðar að því að efla umræðu við karlmenn um málefni fjölskyldunnar og hvetja þá til að sinna föðurhlutverkinu eftir fremsta megni.

Markmiðið með verkefninu er að jafna hlut kynjanna innan heimilisins og uppræta heimilisofbeldi. Einn þeirra sem sótt hefur tíu vikna vikulegt námskeið á vegum samtakanna er Emrah Gonuler, faðir og eiginmaður.
„Skyndilega rann upp fyrir mér að ég var hvorki búin að sinna dóttur minni nægilega vel og né rækta hjónabandið“, segir Emrah er hann fylgist með dóttur sinni leika sér í samtökunum sem þau sækja saman reglulega.
„Ég er byrjaður að tala meira við hana. Nú á hverjum degi eftir skóla segir hún mér frá deginum sínum; hvað hafi glatt hana eða gert hana leiða þann daginn. Verkefnið hefur breytt lífi okkar og gert okkur kleift að knýja fram nauðsynlegar breytingar sem eflt hafa tengsl mín við dóttur mína og breytt fyrir vikið hlutverkum okkar hjóna innan heimilisins.“

Feðranámskeiðin eru haldin reglulega og hafa mælst vel fyrir. Þar hittast feður og ræða þær áskoranir sem þeir standa frammi fyrir í föðurhlutverkinu líkt og; þroska barna og hvernig hvetja megi börn til jákvæðrar hegðunar. Á námskeiðunum er rætt um mikilvægi þess að karlar og konur deili með sér ábyrgðinni á heimili og barnauppeldi auk þess sem rætt er um skaðleg áhrif karlrembutals og neikvæðar hugmyndir um karlmennsku. Með þessari mikilvægu samræðu er vonast eftir aukins skilnings karlmanna hvað varðar þessi mál og að draga megi þar með úr heimilisofbeldi.

Samkvæmt rannsókn sem gerð var á starfi samtakanna kemur fram að feður öðlist meiri færni við að eiga í hlýju og innihaldsríku sambandi við börn sín eftir að hafa tekið þátt í námskeiðinu. Einnig kemur fram að samskiptin innan fjölskyldna þeirra betrumbætist; samskiptin verða opinskárri og lýðræðislegri auk þess sem ríkari meðvitund um ólíkar gerðir ofbeldis eykst. Það er því óhætt að segja að öll fjölskyldan græði á því að fjölskyldufaðirinn sæki námskeið.

orangetheworld_turkey_edvisit_untf_acev_dec2015__unwlow1443_675pxwideHér má sjá Phumzile Mlambo Ngcuka, framkvæmdastýru UN Women og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttir svæðisstjóra UN Women í Evrópu og Mið-Asíum, sækja samtökin heim og kynna sér starfið.
„Það eru ekki nægilega mörg svona verkefni starfrækt, þetta verkefni er heiminum til fyrirmyndar. Með þessu verkefni erum við að vinna í því að breyta heiminum, með einni fjölskyldu í einu og einum föður i einu.“ sagði framkvæmdastýran við lok heimsóknarinnar.

Related Posts