Velheppnuð Fiðrildavika: Íslendingar standa fyrir fiðrildaáhrifum!

Heim / Fréttir / Velheppnuð Fiðrildavika: Íslendingar standa fyrir fiðrildaáhrifum!

Velheppnaðri Fiðrildaviku UN Women á Íslandi lauk formlega á  sunnudag sl. og kunnum við öllum sem lögðu okkur lið kærar þakkir.Photo0583

Helsta markmið Fiðrildavikunnar var að kynna landsmönnum starfsemi UN Women (áður UNIFEM) og má með sanni segja að það hafi gengið vonum framar!

Landsmenn hlýddu kalli okkar og lögðu sitt af mörkum til að þess að koma af stað fiðrildaáhrifum frá Íslandi. Mörg hundruð Íslendingar lögðu okkur lið og skráðu sig í Systralag UN Women og eru nú styrktaraðilarnir orðinir 2,400 talsins. Þetta sterka bakland er undirstaða þess að UN Women á Íslandi geti stutt við bak kvenna í fátækustu ríkjum heims.

Fiðrildavikan var vikuátak sem var þó aðeins aldan á undan flóðinu. Það er svo sannarlega gleðilegt að finna fyrir áframhaldandi stuðningi og áhuga á starfi UN Women.

Árangur Fiðrildavikunnar er sérstaklega gleðilegur þar sem fjárhagslegur tilkostnaður var nánast enginn. Vegna mikils fjölda sjálfboðaliða, velviljaðra fyrirtækja og einstaklinga sem brenna af hugsjón; munu öll fjárframlög Fiðrildavikunnar renna í Systralagið en ekki í tilkostnað vegna átaksins.

Samkvæmt könnum nýrri könnun Newsweek er hvergi betra að vera kona en á Íslandi. Það gleður okkur hversu margir landsmenn gengu til liðs við UN Women í vikunni sem var að líða því UN Women beitir sér fyrir því að bæta kjör kvenna þar sem staða þeirra er hvað verst eins og t.d. í Afganistan, Tjad og Yemen.

Þó að Fiðrildavikunni sé lokið  er baráttunni ekki lokið. UN Women vinnur fyrir hönd kvenna um heim allan, 365 daga ársins. Það er ósk samtakanna að búa í heimi þar sem allar konur fá að njóta sömu tækifæra og íslenskar konur, að þær geti séð fyrir sér og börnum sínum og fái að flögra um eins og fiðrildi –  frjálsar og án ótta.

Related Posts