
Um 250 einstaklingar sóttu viðburðinn í Iðnó. Mynd/Vixi Vifils
Mikill fjöldi fólks sótti hádegisviðburð UN Women á Íslandi í Iðnó, fimmtudaginn 5. mars. UN Women á Íslandi, í samstarfi við plötusnúðinn Benna Bruff, buðu í hádegisdans í anda „Milljarður rís“. Viðburðurinn var haldinn í tilefni FO-herferðar UN Women á Íslandi og alþjóðlegs baráttudags kvenna, 8. mars.
Plötusnúðarnir DJ Bellamix69 og DJ Anna Markar sáu um að halda gestum á dansgólfinu með dúndrandi takti, en um 250 einstaklingar sóttu viðburðinn.
Ný FO-húfa fór einnig í sölu sama dag. FO-átakið 2026 styður við verkefni UN Women í Palestínu, bæði á Gaza og á Vesturbakkanum. FO-herferðin er flaggskip UN Women á Íslandi og hafa yfir 100 milljónir safnast frá árinu 2015.
Herferðin er styrkt af Verði tryggingum, sem stendur straum af öllum framleiðslukostnaði FO-vörunnar og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allar tekjur af sölunni út til verkefna UN Women í Palestínu.
„Ykkar framlag skiptir máli. Það er vatnsglas fyrir konu sem hefur ekkert. Það er næring fyrir barnshafandi móður. Það er pakki af dömubindum fyrir unglingsstúlku. Það er sálrænn stuðningur fyrir fólk sem hefur lifað hræðileg áföll dag eftir dag í meira en tvö ár,“ sagði Anna Steinsen, stjórnarformaður UN Women á Íslandi, sem setti viðburðinn.

Anna Steinsen setur viðburðinn. Mynd/Vixi Vifils

Brosandi gestir. Mynd/Vixi Vifils

Plötusnúðarnir DJ Bellamix69 og DJ Annamarkar. Mynd/Vixi Vifils

