Vantar þig sumarvinnu?

Heim / Fréttir / Vantar þig sumarvinnu?

Gtukynnar2UN Women á Íslandi leitar að jákvæðu og dugmiklu fólki til að sinna fjáröflun og kynningarstörfum fyrir samtökin í sumar. Starfið felst í því að kynna starf UN Women með götukynningu og úthringingum og bjóða fólki að gerast styrktaraðilar. Um er að ræða hálft starf og er vinnutími sveigjanlegur. Viðkomandi kemur til með að vinna í þéttu teymi kraftmikils fólks. Starfið fer að mestu fram á höfuðborgarsvæðinu en getur haft í för með sér ferðir í aðra þéttbýliskjarna. Starfsmaðurinn þarf að vera opinn, framfærinn, áreiðanlegur og vera sjálfstæður í vinnubrögðum. Áhugi og þekking á þróunarmálum, kvenréttindum og málstað UN Women er kostur.

Áhugasamir umsækjendur sendið ferilskrá og umsókn á hanna hjá unwomen.is Nánari upplýsingar í síma 552-6200. Vinsamlegast skilið inn umsóknum sem fyrst en umsóknarfrestur er til og með 25. maí.

Related Posts