Næstkomandi laugardag 5. janúar mun UNIFEM á Íslandi halda fyrsta fund sinn í fundarröðinni UNIFEM-UMRÆÐUR. Markmið fundanna er að varpa ljósi á stöðu kvenna í þróunarríkjum og á stríðshrjáðum svæðum sem og að kynna starf UNIFEM. Fundurinn sem stendur í um klukkutíma verður haldinn í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna og hefst kl. 13. Fundarstjóri verður Hlín Agnarsdóttir.
Á fyrsta fundinum munu tvær íslenskar starfskonur UNIFEM á alþjóðavettvangi segja frá starfi sínu. Hildur Fjóla Antonsdóttir mann- og kynjafræðingur mun varpa ljósi á stöðu kvenna í karabíska hafinu en hún starfar á svæðisskrifstofu UNIFEM á Barbados. Guðrún Sif Friðriksdóttir BA í mannfræði og sérfræðingur á sviði hnattvæðingar starfar í Líberíu og mun fjalla um konur og jafnrétti í V-Afríku. Þær munu báðar beina sjónum sínum að ofbeldi gegn konum í erindum sínum og skoða hvaða áhrif ofbeldi hefur á líf kvenna.
Öll velkomin!