UN Women á Íslandi er landsnefnd sem styður við starf og verkefni UN Women. Landsnefndir UN Women eru skráðar sem frjáls félagasamtök og eru ekki reknar í hagnaðarskyni. Landsnefndirnar eru ótengdar trúfélögum og trúarbrögðum og tengjast ekki stjórnmálaflokkum eða öðrum sambærilegum stofnunum.

UN Women á Íslandi er lögaðili aðgreindur frá UN Women, Sameinuðu þjóðunum og öðrum undirstofnunum Sameinuðu þjóðanna. UN Women á Íslandi hefur gert samning við UN Women þess efnis að landsnefndin styðji við verkefni stofnunarinnar með fjáröflun, vitundarvakningu og vinni að því að efla réttindi kvenna og tryggja sýnileika kvenna og stúlkna um allan heim.

Starfandi eru þrettán landsnefndir UN Women um allan heim. Frekari upplýsingar um landsnefndir UN Women má finna á vefsíðu UN Women hér.

Meginhlutverk UN Women á heimsvísu er:

  • Afnám ofbeldis gegn konum og stúlkum
  • Kvenmiðuð neyðaraðstoð
  • Útrýming fátæktar
  • Að efla pólitíska þátttöku kvenna
  • Konur, friður og öryggi