
Palestínsk kona gengur í gegnum flóttamannabúðir í Gaza. Mynd/UN Women
Samkvæmt nýjustu greiningu UN Women hafa fleiri en 28.000 konur og stúlkur verið drepnar á Gasa síðan átökin hófust í október 2023*. Þetta jafngildir að meðaltali einni konu og einni stúlku sem láta lífið á hverri klukkustund í árásum ísraelska hersins. Meðal hinna látnu eru þúsundir mæðra sem láta eftir sig börn og fjölskyldur. Heilu samfélögin standa eftir í sárum. Tölurnar ná á engan hátt yfir það óbætanlega tjón sem hefur orðið og öll þau líf sem hefur verið umturnað.
Yfirvofandi hungursneyð
Síðan vopnahléið á Gasa var rofið í mars síðastliðnum hefur ástandið þar versnað enn frekar. Engri mannúðaraðstoð hefur verið hleypt inn á svæðið í rúmar tíu vikur. Afleiðingarnar eru skelfilegar: Skortur er á mat, lyfjum og öðrum nauðsynjum. Hver einasta kona og stúlka á Gasa (fleiri en ein milljón) stendur því frammi fyrir hungursneyð. Konur og stúlkur eru á flótta í eigin heimalandi. Þær eiga hvergi skjól, hafa ekki aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og verða sífellt berskjaldaðri fyrir ofbeldi. Tíðni mæðradauða fer hækkandi, einkum vegna skorts á öruggri fæðingarþjónustu og nauðsynlegri umönnun. Staðan er grafalvarleg.
Stöðug barátta í skugga gríðarlegrar neyðar
Þrátt fyrir ólýsanlegar aðstæður halda UN Women áfram að vinna með grasrótarhreyfingum sem leiddar eru af konum á Gasa, til þess að reyna að veita lífsnauðsynlega aðstoð, fræðslu og stuðning. En umfang þjáningarinnar og skortsins á svæðinu er langt umfram þau úrræði og það fjármagn sem stendur til boða. Án verulegrar aukningar í aðgengi að mannúðaraðstoð, fjármögnun og stuðningi er ljóst að óteljandi mannslíf eru í húfi.
Skýr krafa um aðgerðir
UN Women taka undir kröfu aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna um skilyrðislaust vopnahlé, óhindraðan aðgang að mannúðaraðstoð, og skilyrðislausa lausn allra gísla og þeirra sem hafa verið handtekin af handahófi, án dóms og laga.
*Í febrúar 2025 greindi tímaritið The Lancet frá því að líklegt sé að dauðsföll í Gasa hafi verið vanmetin um allt að 41 prósent. Niðurstöðurnar byggja bæði á skráðum dauðsföllum og svonefndum umfram dauðsföllum – þ.e. dauðsföllum sem hafa hugsanlega ekki verið skráð vegna hruns í heilbrigðisþjónustu og skráningarkerfum á svæðinu. UN Women byggði á þessari aðferðafræði við gerð áætlunar sinnar.

