Hátt í átta þúsund hafa horft á myndband herferðar UN Women sem geymir þrjár reynslusögur kvenna um ofbeldi og áreitni í íslensku samfélagi. Sögurnar hafa greinilega hreift við þeim sem horft hafa, því myndböndin hafa verið spiluð 12.300 sinnum.
Vivian Ólafsdóttir leikkona og nemandi í Heilsumeistaraskólanum, leikur konu sem ráðist er á þar sem hún skokkar um húsasund að kvöldlagi í einni af þessum þremur reynslusögum í myndbandi UN Women gegn kynferðisofbeldi.
„Dags daglega leiði ég ekki hugann að svona atvikum, en geri það þó ósjálfrátt þegar ég er ein á einhverjum svona stöðum – enda konur oft berskjaldaðar,“ segir hún.
„Ég tengdi þó sérstaklega við söguna af konunni á vinnustaðnum, því þar getur áreitið verið nokkuð.“ Þar vísar Vivian í sögu konu sem stendur við ljósritunarvélina þegar vinnufélagi gengur hjá og grípur í hana. Þriðja sagan sögð er svo af ungri konu sem situr á bar í miðbænum þegar pillu er laumað í glas hennar.
Áhorfandinn hefur tækifæri á að bjarga henni frá lyfjanauðgun með því að ýta á ákveðinn takka á tölvunni, sem verður til þess að gestur á öldurhúsinu slær glasið úr hendi hennar. Ýti áhorfendur ekki á takkann getur hún ekki bjargað sér úr aðstæðunum.
Tjarnagatan fullvann hugmyndirnar og vann myndböndin fyrir UN Women og Símann, sem styrkir átakið með myndböndunum. Áhorfendur skyggnast inn í heim bæði þolenda kynferðisofbeldis og gerenda með því að tengja saman tölvu og síma. Þeir fylgja svo þolandanum eftir í tölvunni og gerandanum í símanum. Horfa á myndband.
UN Women á Íslandi ýttu herferðinni Örugg borg úr vör þann 19. nóvember og vilja með því skapa konum og börnum öruggt líf án ótta við ofbeldi.
Vilt þú taka þátt í að skapa konum og börnum um heim allan öruggara líf án ótta við ofbeldi? Sem mánaðarlegur styrktaraðili UN Women á Íslandi leggur þú þitt af mörkum í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi. Vertu með! Það tekur aðeins mínútu að skrá sig.

