Þrefalt neyðarástand blasir við konum í Úkraínu

Heim / Fréttir / Þrefalt neyðarástand blasir við konum í Úkraínu

Fjögur ár eru nú liðin frá því að innrásin í Úkraínu hófst af fullum þunga. Á þeim tíma hafa meira en 5.000 konur og stúlkur verið drepnar og 14.000 særst. Árið 2025 var það mannskæðasta til þessa og útlit er fyrir að raunverulegur fjöldi þeirra sem hafa verið drepin sé mun meiri en opinberar tölur segja til um. Þetta kemur fram í fréttayfirlýsingu sem UN Women sendi frá sér á dögunum.

Harðnandi stríðsátök og ítrekaðar árásir á orkuinnviði lama allt daglegt líf í Úkraínu. Samhliða því steðjar nú ný og alvarleg ógn að úkraínskum konum: Skyndilegur niðurskurður í fjárstuðningi til kvennasamtaka. Slík samtök hafa verið hrein líflína fyrir konur og stúlkur í landinu og tryggt þeim vernd, stuðning og nauðsynlega aðstoð.

Valentina, 76 ára, í íbúð sinni í Kænugarði í febrúar 2026. Íbúðin hefur verið án hita dögum saman og rafmagn er aðeins skammtað
í eina klukkustund á dag. Valentina verður að ylja sér við gaseldavélina til að halda á sér hita. Ljósmynd: UN Women/Olha Ivashchenko
Lífsnauðsynleg þjónusta leggst af

Á sama tíma og þörfin fyrir mannúðaraðstoð eykst, standa fjölmörg kvennasamtök í Úkraínu frammi fyrir því að þurfa að hætta starfsemi. Mikill niðurskurður í fjárstuðningi neyðir fjölda kvennasamtaka til að skera niður eða hætta lífsnauðsynlegri þjónustu við konur og stúlkur. The Impact of Foreign Assistance Cuts on Women’s Rights and Women-Led Organizations in Ukraine er ný skýrsla UN Women um áhrif niðurskurðarins á starfsemi kvennasamtaka í Úkraínu. Skýrslan sýnir hve alvarleg staðan er og hve mikil áhrif niðurskurðurinn hefur á líf kvenna og stúlkna.

Þriðjungur þeirra kvennasamtaka sem tóku þátt í könnuninni telur sig aðeins geta haldið úti starfsemi í sex mánuði í viðbót, eða skemur. Það er, miðað við óbreytta fjármögnun. Vegna niðurskurðar árin 2025 og 2026 stefnir í að samtök undir forystu kvenna í Úkraínu verði af ríflega 50 milljónum dollara fyrir lok ársins. Samtökin vara við því að þau neyðist til að hætta lífsnauðsynlegri þjónustu við rúmlega 63 þúsund konur og stúlkur á næsta ári.

Niðurskurðurinn bitnar verst á þeim sem síst mega við því: konum í dreifbýli og við víglínuna, eldri konum, einstæðum mæðrum og fötluðum konum. Þær standa nú frammi fyrir því að missa vernd, neyðaraðstoð og tækifæri til uppbyggingar. Á sama tíma fer hættan vaxandi.

Orkuskortur og vaxandi ógn

Í skýrslu starfshóps um kvenmiðaða neyðaraðstoð (e. Gender in Humanitarian Action – GiHA), sem UN Women, NGO Girls og CARE Ukraine standa að, kemur fram að staðan komi til með að versna enn frekar vegna yfirvofandi orkukreppu og aukinna árása. Úkraínsk kvennasamtök sýna ótrúlegan viðnámsþrótt. Engu að síður hafa orkuskortur og rafmagnsleysi alvarleg áhrif á rekstrargetu þeirra og möguleika á að ná til fólks í neyð. Þá hefur það ekki síst áhrif á andlega og líkamlega líðan starfsfólksins. Þörfin er gríðarleg nú þegar milljónir í Úkraínu búa við skort á hita, vatni og rafmagni.

„Kvennasamtök í Úkraínu eru fyrst til að standa með konum og stúlkum í neyð. Þau veita ekki bara vernd heldur líka reisn og von. Niðurskurðurinn sem við sjáum núna er að eyðileggja þessa líflínu,“ segir Sima Bahous, framkvæmdastýra UN Women. „UN Women heldur áfram að styðja við og fjárfesta í úkraínskum kvennasamtökum. Það er þó nauðsynlegt að tryggja aukna fjármögnun til langs tíma svo þau geti áfram veitt lífsnauðsynlega þjónustu. Það er eina leiðin til að tryggja að konur og stúlkur hafi raunveruleg áhrif á uppbyggingu sem tekur mið af þörfum þeirra, og eigi fullan þátt í að koma á réttlátum og varanlegum friði.“


Um UN Women

UN Women er leiðandi stofnun innan Sameinuðu þjóðanna sem vinnur að jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna. Við leggjum áherslu á að breyta lögum og viðhorfum til að loka kynjabilinu. Þá leggjum við áherslu á að tryggja réttindi kvenna og stúlkna um allan heim. Jafnrétti er kjarninn í öllu okkar starfi.

Fyrir fyrirspurnir, hafðu samband við UN Women Media Team:  media.team@unwomen.org

Related Posts