Þjóðþekktir einstaklingar leggja UN Women á Íslandi lið í nýrri FO-herferð

Heim / Fréttir / Þjóðþekktir einstaklingar leggja UN Women á Íslandi lið í nýrri FO-herferð
Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga tekur þátt í FO herferðinni í ár. Mynd: Wyom Studios

Ný FO-húfa leit dagsins ljós síðastliðið laugardagskvöld þegar tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN, bar hana í viðtali frá Arnarhóli á Menningarnótt. Hin árlega FO-herferð UN Women á Íslandi fer af stað föstudaginn 30. ágúst en um er að ræða stærsta árlega söfnunarátak samtakanna. Í gegnum átakið, sem hófst árið 2015, hafa safnast meira en 100 milljónir króna til verkefna UN Women sem hafa það að markmiði að uppræta kynbundið ofbeldi. Í ár mun ágóðinn renna til verkefna UN Women í Súdan.

Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga tekur þátt í FO-herferð UN Women á Íslandi í ár, en auk GDRN má þar nefna tónlistarfólkið Unu Torfadóttur, Jón Jónsson, Margréti Rán Magnúsdóttur (RÁN), Emilíönu Torrini, Alexander Jarl, Doctor Victor, IntroBeatz og fleiri. Auk þess er þar að finna systkinin Asil- og Suleiman Al Masri frá Palestínu og Noorinu Khalikyar frá Afganistan, en þau hafa öll fengið alþjóðlega vernd hér á landi. Ljósmyndarinn Anna Maggý tók allt myndefni fyrir herferðina, ásamt ljósmyndaranum Rebekku Joe en saman mynda þær undir merkjum Wyom Studios. Þetta er í fimmta sinn sem Anna Maggý myndar FO-herferð UN Women á Íslandi.

Helga Lilja Magnúsdóttir hannaði húfuna í samstarfi við UN Women á Íslandi. Mynd: Wyom Studios

FO-húfan 2024 var hönnuð í samstarfi við fatahönnuðinn Helgu Lilju Magnúsdóttur sem hannar undir merkjunum Helicopter og BAHNS og tekur hún einnig þátt í herferðinni. Húfan er framleidd af VARMA og kemur í tveimur sniðum, sem hin fullkomna „kollhúfa“ og sem hefðbundin húfa með einföldu uppábroti. Húfan kostar 5.900 kr.

Um hönnunina segir Helga Lilja: „Þegar UN Women á Íslandi nálgaðist mig vegna FO-húfunnar 2024, þá langaði mig strax að fara með þau á aðeins aðrar slóðir en húfurnar hafa verið hingað til, sem eru dökkir tónar. Við ákváðum að styðjast við bláa lit Sameinuðu þjóðanna og treysta á að Íslendingar séu til í að klæðast öðrum litum en svörtum.“

Herferðin er styrkt af Öryggismiðstöðinni, sem stendur straum af öllum framleiðslukostnaði FO-húfunnar og gerir UN Women á Íslandi kleift að senda allan ágóða út til verkefna UN Women í Súdan.

Óttast að týna heilli kynslóð kvenna og stúlkna vegna áfalla

Sem fyrr segir er FO-herferðin 2024 til styrktar Súdan en stríðið í Súdan hefur stundum verið kallað gleymda stríðið. Vopnuð átök hafa geisað í ríkinu nánast linnulaust frá árinu 2003. Þann 15. apríl árið 2023 brutust út mjög hörð átök á milli SAF og RSF, sem berjast um völd í landinu, og standa þau átök enn yfir.

Að sögn UN Women hefur reynst erfitt að tryggja alþjóðlegt fjármagn í neyðar- og mannúðaraðstoð í Súdan þar sem ríkið er „erfið söluvara“ vegna þeirra áralöngu vopnuðu átaka sem þar hafa geisað. Þó er staðan í Súdan sú að Sameinuðu þjóðirnar telja hana til stærstu mannúðarkrísa heims í dag. Meira en 11 milljónir hafa neyðst til að flýja heimili sín í kjölfar átakanna og vannæring er vaxandi vandamál í öllum héruðum Súdans, um 70% heilbrigðisstofnana eru óstarfhæf og 2/3 íbúa landsins hafa ekki greiðan aðgang að læknisþjónustu. Auk þess eru súdanskar konur gríðarlega berskjaldaðar fyrir kynferðislegu- og öðru kynbundnu ofbeldi og eru í raun ítrekað útsettar fyrir ofbeldi. Samkvæmt UN Women hafa komið upp um 5 milljón tilfella kynferðislegs- og kynbundins ofbeldis í Súdan. Þetta eru þó aðeins þau tilfelli sem vitað er um – rauntölur eru líklega margfalt hærri.

Scenes from the Rubkona IDP Camp in South Sudan (Photo: UN Women/James Ochweri)
Konur í Rubkona flóttamannabúðunum sækja vatn. Mynd: UN Women/James Ochweri

„UN Women í Súdan hafa miklar áhyggjur af stöðu kvenna og stúlkna í kjölfar átakanna og sjá fram á að missa heilu kynslóðir kvenna og stúlkna vegna þeirra miklu líkamlegu, andlegu og efnahagslegu áfalla sem þær hafa upplifað, “segir Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi.

Hvað gerir UN Women í Súdan?

Verkefni UN Women í Súdan hafa breyst með tilkomu stríðsins og miðast nú að mestu leyti að því að veita konum og stúlkum mannúðar- og neyðaraðstoð. Meðal þess sem UN Women í Súdan gerir er að:

  • Veita þolendum ofbeldis aðgengi að þjónustu í samstarfi við súdönsk félagasamtök
    • Vinna að því að koma upp þjónustumiðstöðvum fyrir konur og stúlkur á flótta
    • Skrásetja og afla gagna um kynbundið ofbeldi svo hægt sé að sækja málin til saka á síðari tímum
    • Bera kennsl á konur og stúlkur í viðkvæmri stöðu svo hægt sé að ábyrgjast að þær hljóti aðgang að mat og nauðsynjum
    • Þjálfa starfsfólk félagasamtaka sem veita aðstoð til flóttafólks
    • Bera kennsl á konur með leiðtogahæfileika, efla þær og þjálfa upp í samningaviðræðum. Þessa hæfileika er svo hægt að nýta þegar verið er að semja um frið, fjármagn og aðrar lausnir í samfélagslegri uppbyggingu landsins
UN Women á Íslandi býður í útgáfuhóf föstudaginn 30. ágúst

Til að fagna nýrri FO-húfu verður slegið til gleðskapar á Loft Hostel, Bankastræti 7, föstudaginn 30. ágúst klukkan 17:00  – 19:00. Léttar veitingar verða í boði Mist Iceland, Lava Cheese, Sætra Synda og fleiri. GDRN flytur nokkur lög og DJ Apex Anima mun þeyta skífum. Þá verður happdrætti og auðvitað hægt að nálgast nýju FO-húfuna á staðnum. Öll velkomin!

Related Posts