Systir mánaðarins – mars 2012

Heim / Fréttir / Systir mánaðarins – mars 2012

291990_10150479706694815_962656668_nÍ dag eru tæplega 2400 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega. Systralag UN Women á Íslandi er helsta fjáröflunarleið samtakanna hér á landi. Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr hinum ýmsum áttum. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.

Nafn? Frímann Sigurðsson.

Starf? Ég þigg laun fyrir verkefnastjórnun, ráðgjöf, kennslu og þjálfun.

Aldur? 33.

Hvenær gekkstu í Systralagið? Mig minnir að þetta hafi verið fagran laugardag í tjaldi á Austurvelli þar sem ég ákvað að gerast Systir. Ég man að fyrsta tilfinningin hafi verið blanda af stolti, þakklæti og auðmýkt.

Af hverju að styrkja konur? Ein af mínum fyrirmyndum frú Vigdís Finnbogadóttir svaraði á framboðsfundi í sjónvarpssal 1980 aðspurð um hvort fólk ætti að kjósa hana af því að hún væri kona að svo væri ekki. Fólk ætti ekki að kjósa hana af því að hún væri kona heldur af því að hún væri maður og undir orðinu maður væri bæði karl og kona.

Hvað þýðir jafnrétti fyrir þér? Er það ekki eitthvað bragðlaukasmakk á milli forrétta og aðalrétta?

Related Posts