Í dag eru tæplega 2400 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega. Systralag UN Women á Íslandi er helsta fjáröflunarleið samtakanna hér á landi. Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr hinum ýmsum áttum. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.
Nafn? Óttar Martin Norðfjörð
Starf? Rithöfundur
Aldur? 31
Hvenær gekkstu í Systralagið? Fyrir tæpum tveimur árum til að leggja mitt að mörkum til þessa mikilvæga málaflokks.
Af hverju að styrkja konur? Vegna þess að fjölmargar konur um víða veröld eru í brýnni neyð og þurfa á stuðningi okkar að halda. Samviskan mín leyfir mér ekki að sitja algerlega aðgerðarlaus, þess vegna er ég systir.
Hvað þýðir jafnrétti fyrir þér? Að allir fái að njóta sömu tækifæra til góðs lífs; eins og hver og einn skilur hugmyndina á bak við „hið góða líf“; óháð kyni, þjóðerni, trúarbrögðum og stétt.
Vilt þú vera systir mánaðarins? Sendu okkur póst á unwomen@unwomen.is