Systir mánaðarins – apríl 2012

Heim / Fréttir / Systir mánaðarins – apríl 2012

Í dag eru tæplega 2400 manns sem styrkja starf UN Women mánaðarlega. Systralag UN Women á Íslandi er helsta fjáröflunarleið samtakanna. Styrktaraðilar Systralagsins eru á öllum aldri og úr hinum ýmsum áttum. Í ár viljum við kynnast styrktaraðilum okkar nánar og um leið skapa umræðu um jafnrétti kynjanna.

Nafn: Diljá Ámundadóttirdilja

Starf: Hugmyndasmiður á auglýsingastofunni ENNEMM og varaborgarfulltrúi fyrir Besta flokkinn

Aldur: 33ja ára

Hvenær gekkstu í Systralagið: Í lok árs 2009 minnir mig. Mér var boðið í UN Women boð þar sem ég skrifaði undir e-ð plagg. Síðan þá hef ég styrkt og verið systir annara kvenna útum allan heim. Semsagt stolt og meðvituð.

Afhverju að styrkja konur: Það eru nú fjölmargar ástæður fyrir því. Mér finnst óbærilegt að hugsa til þess að á átakasvæðum víða um heim eru nauðganir notaðar sem vopn. Svo er þeim útskúfað út úr samfélaginu og eiga ekki afturkvæmt. Það að ég geti mögulega tekið þátt í því að byggja upp miðstöð eða samastað fyrir þessar blessuðu konur er helsta ástæða mín.

Hvað þýðir jafnrétti fyrir þér: Jafnrétti verður fyrst náð þegar vanhæfar konur ná jafnlangt og vanhæfir karlar hafa gert.

Related Posts