Sterkar stelpur – sterk samfélög

Heim / Fréttir / Sterkar stelpur – sterk samfélög

haíti stulkaUnglingsstúlkur í fátækustu ríkjum heims verða í brennidepli í kynningarviku sem Þróunarsamvinnustofnun og frjáls félagasamtök í alþjóðastarfi standa fyrir 6. – 11. október nk.

Unglingsstúlkur í fátækustu ríkjum heims eru í brennidepli í kynningarviku frjálsra félagasamtaka og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands undir heitinu Sterkar stelpur – sterk samfélög.

Annars vegar hafa rannsóknir síðustu ára sýnt að unglingsstúlkan er einn höfuðlykill að því að uppræta fátækt í heiminum. Hins vegar að staða unglingsstúlkna er víða skelfileg, sláandi misrétti, nauðungarhjónabönd, ofbeldi og valdleysi.

Dagskrá baráttuhátíðarinnar í Silfurbergi í Hörpu:

-Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur.

-Pernille Fenger frk.stj. Mannfjöldastofnunar Sameinuðu þjóðanna á Norðurlöndunum flytur erindi um áskoranir unglingsstúlkna í þróunarlöndum.

-Sigríður María Egilsdóttir laganemi og fv. ræðumaður Íslands blæs íslenskum ungmennum andann í brjóst.

-Erla Björg Gunnarsdóttir blaðamaður Fréttablaðsins segir sögu stúlku í Kenía, sem hún hitti og er á flótta undan hnífnum.

-Myndbönd, reynslusögur stúlkna í þróunarríkjum og tónlist.

Kynnir: ungmenni úr ungmennaráði Reykjavíkurborgar.

Myndbandasamkeppni

Þróunarsamvinnustofnun og frjáls félagasamtök í þróunarsamvinnu kalla eftir stuttum myndböndum undir þemanu Sterkar stelpur. Allir 18 ára eða yngri, einstaklingar og hópar mega taka þátt. Hægt er að senda myndböndin eða upplýsingar um hvernig má nálgast þau á sterkarstelpur@gmail.com fyrir 3. október næstkomandi. Nánari upplýsingar á Facebook síðu Þróunarsamvinnustofnunar.

Stórtónleikar

Einn af aðalviðburðum vikunnar eru stórtónleikar í samstarfi við KÍTÓN, félag kvenna í tónlist, föstudaginn 10. október klukkan 20 í Iðnó. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.Fram koma
MAMMÚT
Young Karin
Himbrimi
Boogie Trouble
Una Stef
Alvia Islandia
Kælan Mikla
Soffía Björg
Laufey og Júnía, sigurvegarar Söngkeppni Samfés.

Kynnir: Tinna Sverrisdóttir Reykjavíkurdóttir.

 

Related Posts