Stefnumótakaffi – Áslaug Rán Einarsdóttir sem segir frá reynslu sinni af ferðalögum um heiminn á svifvæng. Hún hefur svifið um loftin blá í ótal löndum í nafni UN WOMEN undir yfirskriftinni “The Flying Effect”. 
Flug á svifvæng byggist á því að flugmaðurinn finni sér uppstreymi lofts, til að mynda vindur á leið upp fjallshlíð eða hitauppstreymi. Svifvængur er einfaldasta og léttasta form flugs sem þekkist í dag. Vængurinn er úr þunnum en sterkum nælondúk með efra og neðra lagi og lofthólfum þar á milli. Á flugi helst hann útblásinn af loftinu sem fyllir hólfin. Hægt er að stjórna vængnum með því að toga í þar til gerða spotta og með þyngdarfærslu (svipað og á skíðum). Öllum búnaðinum er svo hægt að pakka niður í bakpoka. Útsjónarsamur flugmaður getur þannig ferðast langar leiðir. Skilningur á veðurfræði og hvernig landslag mótar loftstrauma er nauðsynlegur eiginleiki fyrir svifvængjaflugmenn. Það að svífa í loftinu, hátt yfir jörðinni á nælonvæng og treysta algerlega á náttúruöflin og sjálfan sig gefur tilfinningu um fullkomið frelsi. Út frá þessari sterku tilfinningu og frelsisþrá spratt hugmyndin að verkefninu The Flying Effect. Með verkefninu vildu þær Áslaug Rán Einarsdóttir og Aníta Hafdís Björnsdóttir reyna að vekja athygli á rétti kvenna um allan heim til frelsis með því að taka ákveðna áhættu sjálfar til að láta drauma sína rætast. Þær seldu eigur sínar og kvöddu fjölskyldu og vini, örugga innkomu og Ísland í desember 2009. Þær ferðuðust saman til Nepal, Indlands, Thailands, Malasíu, Indónesíu, Frakklands, Spánar, Grikklands, Marokkó, Englands, Ítalíu, Möltu, Þýskalands, Svíþjóðar, Danmerkur og Færeyja. Í samvinnu við UN Women á Íslandi var ævintýrið liður í átaki undir hinu mjög svo viðeigandi slagyrði: Við viljum gefa konum byr undir báða vængi.
Stefnumótakaffið verður haldið 11.apríl kl. 20 í Gerðubergi.