Sigrar ársins 2024

Heim / Fréttir / Sigrar ársins 2024

Saoirse Ronan í þætti Graham Norton.

Þegar líður að árslokum hefur verið venja UN Women á Íslandi að líta yfir farinn veg og fagna þeim merku áföngum og jafnréttissigrum sem náðust á árinu. Um allan heim sýndu konur ótrúlega seiglu, hugrekki og baráttuhug þegar kom að baráttunni fyrir grunnmannréttindum sínum og annarra. UN Women á Íslandi rifjar hér upp nokkra merka atburði sem gerðust árið 2024 og marka spor í kvennasögunni og baráttunni fyrir jafnrétti.

Gisele Pelicot

Gisele Pelicot varð þjóðþekkt í heimalandi sínu Frakklandi þegar hún fór fram á að málaferli hennar gegn eiginmanni hennar, sem ákærður var fyrir að beita hana grófu kynferðisofbeldi og byrla henni ólyfjan, færu fram fyrir opnum dyrum. Gisele hefur sagt í fjölmiðlum að ólíklegt sé að hún muni nokkru sinni ná sér eftir brotin en að hún hafi verið drifin áfram af þörfinni fyrir að breyta frönsku samfélagi.

„Fjöldi kvenna og karlmanna hefur kallað mig hugrakka. Þetta er ekki hugrekki heldur er það viljinn og staðfestan til að breyta samfélaginu sem drífur mig áfram. Ég vil að allir þolendur nauðgunar segi: Frú Pelicot gerði það, þá getum við þetta líka. Þolendur upplifa skömm, og það er ekki okkar að búa við skömm, heldur þeirra sem nauðga. Nauðgarar eru ekki einhver sem þú mætir á bílastæði seint um nótt. Nauðgari getur verið tengdur þér fjölskylduböndum, eða verið vinur þinn.“

 

Claudia Sheinbaum Pardo

Sá sögulegi viðburður átti sér stað í haust þegar Claudia Sheinbaum Pardo var kosin fyrst kvenna til að gegna embætti forseta Mexíkó. Sheinbaum er 66. forseti landsins en hafði áður setið sem borgarstjóri Mexíkóborgar frá árinu 2018 til 2023. Hún er með doktorsgráðu í orkuverkfræði. Sheinbaum vann afgerandi sigur í forsetakosningunum í Mexíkó og hlaut tæplega 60% atkvæða.

Elaha Soroor

Afganska söngkonan og tónskáldið Elaha Soroor samdi lagið Naan, Kar, Azadi! (Brauð, atvinna, frelsi) sem frumflutt var á fundi um stöðu afganskra kvenna sem fram fór í Albaníu í október. Fundurinn nefndist All Afghan Women Summit og hann sóttu nánast eingöngu afganskar konur til að ræða stöðu kvenna í landinu. Í gegnum feril sinn hefur Soroor verið óhrædd við að beita sér fyrir mannréttindum og kvenréttindum. Soroor hlaut fyrst frægð og frama fyrir þátttöku sína í hæfileikakeppninni Afghan Star árið 2009. Hún varð fyrir miklu aðkasti vegna þess og flutti burt frá Afganistan árið 2010.

Han Kang

Suður-Kóreski rithöfundurinn Han Kang hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2024 og er fyrsti suðurkóreski höfundurinn til að hljóta þau. Í umsögn dómnefndar sagði að Kang hljóti verðlaunin fyrir ákafan og ljóðrænan prósa sem tekur á sögulegum áföllum og afhjúpar hve brothætt mannlífið er. Eitt frægasta verk hennar er skáldsagan Grænmetisætan en fyrir hana hlaut Kang hin alþjóðlegu Man Booker-verðlaun.
Kang er alin upp á menningarlegu heimili og er faðir hennar einnig virtur rithöfundur í heimalandinu. Samhliða skrifum sínum sinnir hún jafnframt myndlist og tónlist.

 

Hinda Abdi Mohamoud

Blaðakonan Hinda Abdi Mohamoud frá Sómalíu hefur haldið dagbók frá því að hún var ung stúlka. Í bókina safnaði hún sögum um fólk sem flúði átök í heimabæ hennar. Í dag ritstýrir hún Bilan, fyrsta og eina fjölmiðlinum í Sómalíu sem rekinn er af konum. Meðal málefna sem fjölmiðillinn fjallar um eru jafnréttismál, áreitni sem sómalskar konur verða fyrir á vinnustað, HIV og málefni jaðarsettra hópa.

Saoirse Ronan

Írska leikkonan Saoirse Ronan vakti heimsathygli þegar hún var gestur í The Graham Norton Show á BBC ásamt leikurunum Paul Mescal, Eddie Redmayne og Denzel Washington í lok október. Í þættinum ræddu Redmayne, Norton og Mescal um undirbúning Redmaynes fyrir kvikmynd sem fól meðal annars í sér þjálfun í bardagatækni. Redmayne lærði hvernig nota mætti hversdagslega hluti á borð við farsíma í sjálfsvarnarskyni. Karlmennirnir göntuðust með að engum dytti í raun í hug að nota farsíma sem vopn þegar Saoirse skaut inn í: „Þetta er það sem stúlkur þurfa stöðugt að hugsa um. Ekki rétt, stúlkur?“ Og uppskar mikið lófaklapp frá konum í sjónvarpssal á meðan Mescal og Redmayne settu hljóðan.

Þessi litla athugasemd leikkonunnar fór sem eldur um sinu um netheima. Fjöldi kvenna benti á þau ómeðvituðu forréttindi sem karlmenn búa við, forréttindin að þurfa ekki stöðugt að vera á varðbergi í sínu daglega lífi. Athugasemdin beindi kastljósinu enn fremur að því kynbundna ofbeldi og áreiti sem konur eru beittar daglega um allan heim.

Kamala Harris

Forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum, Kamala Harris, markaði stór spor í sögu landsins þegar hún varð fyrsta konan til að gegna embætti varaforseta landsins í forsetatíð Joe Bidens. Þó að hún hafi ekki verið fyrsta litaða konan til að bjóða sig fram sem forseti landsins, þá varð hún fyrsta litaða konan sem kjörin var forsetaefni annars tveggja stóru flokkanna. Hefði hún náð kjöri, hefði hún orðið fyrsta konan til að gegna þessu valdamesta embætti Bandaríkjanna.

Ómetanlegur stuðningur Moniku Abendroth og Háteigsskóla

UN Women á Íslandi hlaut ómetanlegan stuðning úr ýmsum áttum á árinu. Tónlistarkonan Monika Abendroth færði UN Women á Íslandi ágóða afmælissöfnunar sem hún efndi til í tilefni 80 ára afmælis síns. Alls söfnuðust 210 þúsund krónur sem renna í neyðarsöfnun UN Women á Íslandi fyrir konur og stúlkur á Gaza og í Líbanon. Monika segist lengi hafa kosið að leggja góðu málefni lið frekar en að þiggja gjafir á afmæli sínu.

„Mér finnst þetta sérstaklega mikilvægt á tímum sem þessum. Þegar manni finnst mannúðin á undanhaldi, þá er mikilvægt að leggja eitthvað til sem vegur upp á móti, eitthvað jákvætt. Ástæðan fyrir því að ég kaus að styrkja UN Women á Íslandi var sú að með því að styðja við konur á átakasvæðum, styður maður einnig við börn þeirra og samfélagið í heild,“ segir Monika.

Þá stóð unglingastig Háteigsskóla fyrir sérstöku góðgerðarverkefniundir heitinu Okkar hjartans málÞá safnar unga fólkið alls kyns hlutum sem þau selja þennan dag og rennur allur ágóði til góðra mála. Í ár studdu þau við konur og stúlkur í Palestínu í gegnum starf UN Women á Íslandi.

UN Women á Íslandi er gríðarlega þakklátt þessum stuðningi.

Halla Tómasdóttir

Halla Tómasdóttir var kosin forseti Íslands í júní og tók við embætti forseta Íslands af Guðna Th Jóhannessyni þann 1. ágúst 2024. Halla er sjöundi forseti Íslands og önnur konan sem gegnir embættinu. Halla hefur látið sig umhverfis- og jafnréttismál varða í gegnum fyrri störf sín.

Related Posts
UN Women staff load humanitarian supplies to be distributed to women in Sudan. Photo: Muna Elsadaty.