Þann 8. mars verður alþjóðlegur baráttudagur kvenna haldinn hátíðlegur um allan heim eins og gert hefur verið í yfir 100 ár. Af því tilefni efnir Borgarleikúsið til sérstakrar styrktarsýningar á Eldhafi þann 7. mars næstkomandi þar sem allur ágóði rennur til samtaka UN Women á Íslandi.
Sýningin hefst kl 19 og að henni lokinni gefst áhorfendum færi á að taka þátt í umræðum með aðstandendum verksins og fulltrúum UN Women. UN Women starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna í þágu kvenna og jafnréttis og veitir fjárhagslega og faglega aðstoð til að bæta stöðu kvenna í fátækustu löndum heims og stríðsátakasvæðum. Samtökin eiga árs afmæli föstudaginn, 24. febrúar.
Leikritið Eldhaf eftir líbanska höfundinn Wajdi Mouawad hefur farið sigurför um heiminn, verið þýtt á tuttugu tungumál og sýnt í yfir 100 uppsetningum. Eldhaf rekur sögu móður í stríðshrjáðu landi, harmleikur um fortíðina sem skapar nútímann og höfðar beint til hjartans. Verkið var frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins 26. janúar og hefur hlotið fádæma viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda. Leikstjórn er í höndum Jóns Páls Eyjólfssonar og í burðarhlutverkum eru þau Unnur Ösp Stefánsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir.
Um Eldhaf Kona deyr á sjúkrahúsi. Börn hennar, tvíburarnir Símon og Janine, eru boðuð á fund lögfræðings vegna erfðaskrár móður þeirra. Hann afhendir þeim sitt hvort bréfið frá móðurinni og segir það hinstu ósk hennar að tvíburarnir afhendi bréfin í eigin persónu. Annað á að færa bróður þeirra sem þau vissu ekki að væri til og hitt föður þeirra sem þau töldu látinn. Systkinin halda með bréfin í óvenjulega ferð sem afhjúpar þeim áður ókunna fortíð móður þeirra og hræðilegt leyndarmál. Höfundur verksins Wajdi Mouawad (1968) er fæddur í Líbanon en flúði með foreldrum sínum til Parísar og býr nú í Montréal í Kanada þar sem hann starfar sem leikari, leikstjóri, leikhússtjóri og leikskáld. Eldhaf er hans þekktasta verk, hefur verið þýtt á tuttugu tungumál, farið sigurför um heiminn og verið sýnt í yfir 100 uppsetningum á síðustu árum.
Höfundur: Wajdi Mouawad | Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson | Þýðing: Hrafnhildur Hagalín | Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir | Lýsing: Þórður Orri Pétursson | Tónlist: Hallur Ingólfsson | Leikarar: Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Bergur Þór Ingólfsson, Birgitta Birgisdóttir, Þórir Sæmundsson, Jörundur Ragnarsson
Hægt er að nálgast miða á sýninguna á www.borgarleikhus.is eða í síma 568-800. Miðaverð er 4400 krónur.
Úr dómum um sýninguna
„Áhrifamikið verk og afar sterk sýning“ – KHH, Fréttatíminn
„Spennandi og ágengt verk sem fjallar um mikilvægt efni“ – SGG, Mbl
„Einstaklega vel gerð, nýstárleg og spennandi sýning“ – EB, Fbl
„Lætur engan ósnortinn“ – SB, Djöflaeyjan
„Áhugaverð sýning og safaríkt verk“ – SG, Víðsjá