Segjum NEI við ofbeldi gegn konum!

Heim / Fréttir / Segjum NEI við ofbeldi gegn konum!

kidmanNicole Kidman góðgerðasendiherra UNIFEM vekur í eftirfarandi bréfi athygli á átaki sem er að fara af stað á vegum UNIFEM. Við hvetjum alla til að taka þátt og skrifa undir á síðunni: http://www.saynotoviolence.org

Góðan daginn,

Talið er að ein af hverjum þremur konum sé misnotuð eða beitt ofbeldi einhvern tímann á lífsleiðinni. Þetta er hræðilegt mannréttindabrot. En við getum bundið enda á þetta.

Sem góðgerðasendiherra Þróunarsjóðs kvenna á vegum Sameinuðu þjóðanna, UNIFEM, bið ég þig um að „segja NEI við ofbeldsystralagi_051_thumb300_300i gegn konum“ með því að taka þátt í hnattrænu stuðningsátaki okkar á internetinu. Víðtækur stuðningur fólks í öllum löndum kemur til með að senda sterk skilaboð til ríkisstjórna um allan heim um að afnám ofbeldis gegn konum skuli og verði að vera forgangsverkefni.

 

Vinsamlegast hjálpaðu okkur að sýna fram á að hundruð þúsundir, jafnvel milljónir, karla og kvenna krefjast aðgerða og úrræða sem fyrirbyggja, vernda og veita þjónustu fyrir þolendur ofbeldis. Hvernig getur þú gert það? Með því að bæta nafni þínu í bókina okkar sem og með því að breiða út orðið til vina, fjölskyldu og vinnufélaga svo þau geti einnig tekið þátt.

Ég gerðist góðgerðasendiherra UNIFEM til þess að ljá konum og stúlkum rödd sem þurft hafa að sæta ofbeldi og misnotkun. Það er ástæða þess að ég var sú fyrsta sem undirritaði áskorunina í þessari mikilvægu herferð. Vinsamlegast bættu þínu nafni við mitt. Það er auðvelt og fljótlegt. Sérstök vefsíða hefur verið búin til á slóðinni http://www.saynotoviolence.org/ þar sem hægt er að skrifa undir.

Því fleiri nöfnum sem við söfnum því sterkari verða þau skilaboð sem við sendum út um að afnám ofbeldis gegn konum skuli sett efst á framkvæmdalista og geri heiminn öruggari fyrir konur. Takk fyrir að taka þátt með mér í þessu verkefni.

 

Nicole Kidman 

Góðgerðasendiherra UNIFEM

Related Posts