Meðan Ríó-ráðstefnan stóð sem hæst stóð UN Women, með Michelle Bachelet í broddi fylkingar, fyrir leiðtogafundi kvenleiðtoga þar sem lögð var áhersla á þá framtíð sem konur vilja.
Á fundinum var undirritað ákall um aðgerðir sem unnið var út frá tillögum UN Women um skýra stefnumótun sem varðar jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna í allri sjálfbærri þróun. Jafnframt var gerð sú krafa að aðildarríki SÞ fylgdu þessu fordæmi og gerðu kynjajafnrétti að forgangsatriði í allri stefnumótun um sjálfbæra þróun.
Með þessu
ákalli lögðu kvenleiðtogar áherslu á framlag kvenna til efnahagslegs vaxtar og umhverfislegrar sjálfbærni sem leiðtogar, borgarar, framleiðendur, neytendur, frumkvöðlar, vinnuafl, umannendur og veitendur grundvallarþjónustu á friðar- og stríðstímum.
Bentu þær á að áhyggjur vekti að þrátt fyrir þetta mikilvæga hlutverk væru það í flestum tilfellum konur sem bæru byrðar hnattrænna vandamála og aukins misréttis. Þetta sýnir sig í þeim fjölda kvenna sem búa við fátækt, hungur, ólaunaða vinnu og varnarleysi gagnvart náttúruhamförum, ófriði og sjúkdómum.
Tæknin og bolmagnið eru til staðar í heiminum til að breyta þessum veruleika. Í yfirlýsingu kvenleiðtoganna kemur fram að takast verði á við það aðgerðarleysi sem veldur því að ójafnrétti viðhelst og taka skref í átt að sanngjarnri og jafnri sjálfbærri þróun sem hagnast öllu mannfólki, konum og körlum jafnt.
Sú framtíð sem konur vilja einkennist af heilbrigði, frelsi frá hungri, ótta, ofbeldi og fátækt; í heimi sem byggir á réttilæti, mannréttindum og jafnrétti kynjanna; þar sem konur og karlar, stúlkur og drengir hafa jafnan rétt og tækifæri, jafnan rétt til auðlinda, menntunar, heilbrigðisþjónustu, vinnu, valda og ákvarðanatöku; í heimi þar sem konu njóta góðs af þeim ávinningi sem næst með sjálfbærri þróun, í dag og um alla framtíð.
Markmið þessara leiðtoga að ráðstefnunni lokinni er að framfylgja þeim skuldbindingum sem gerðar hafa verið í Ríó, halda áfram að veita UN Women stuðning og auka ábyrgð SÞ á sviði jafnréttis og valeflingar kvenna. Jafnframt lögðu þær fram þá kröfu að borgarar, samfélög, fyrirtæki og stjórnmálaleiðtogar svari þessu ákalli og taki höndum saman í því að efla jafnrétti og valeflingu kvenna í sjálfbærri þróun svo að sú framtíð sem konur vilja verðu sú framtíð sem við deilum öll.
Við þessa yfirlýsingu kvenleiðtoga heims bætti Michelle Bachelet, fyrir hönd UN Women, að stofnunin myndi halda áfram að gegna lykilhlutverki í því að efla jafnrétti og valdeflingu kvenna innan SÞ og stuðla að því að þessu ákalli verði fylgt eftir. Lagði hún áherslu á að til þess að SÞ geti starfað sem ein heild og náð þessum mikilvægu markmiðum verði aðildarríki að taka höndum saman í því að byggja upp græn hagkerfi, vinna að sjálfbærum þróunarmarkmiðum og vinna að svara því ákalli kvenleiðtoganna um þá framtíð sem konur vilja.