Í dag á ráðstefnunni Aukið jafnrétti – Aukin hagsæld undirrituðu fimm íslensk fyrirtæki og eitt alþjóðlegt fyrirtæki undir Jafnréttissáttmála UN Women og Global Compact (Women‘s Empowerment Principles).
Þau eru Alcoa Global, Fjarðaál, Össur, Arion banki, Actavis á Íslandi og Orkuveita Reykjavíkur. Þessi fyrirtæki bætast í hóp þeirra 14 fyrirtækja sem nú þegar hafa undirritað sáttmálann. Auk þeirra gaf Stjórnarráðið út yfirlýsingu þess efnis að það hyggst innleiða sáttmálann í stjórnsýslunni. Þetta er í fyrsta skipti sem þjóðríki gegnst að Jafnsáttmálanum á þennan hátt.
“Það stuðlar að framgangi í jafnréttismálum þegar að jafn öflug fyrirtæki skrifa undir Jafnréttissáttmála UN Women og Global Compact, “ segir Soffía Sigurgeirsdóttir starfandi framkvæmdastýra landsnefndar UN Women á Íslandi. “Ísland hefur verið til fyrirmyndar í jafnréttismálum til margra ára því er það einstaklega ánægjulegt að íslenska stjórnarráðið sé það fyrsta á heimsvísu að innleiða Jafnréttissáttmálann. Full þátttaka kvenna innan stjórnsýslunnar og fyrirtækja í opinberum rekstri er forsenda góðra viðskiptahátta og stuðlar jafnframt að sjálfbærni og aukinni hagsæld.”
UN Women er í fararbroddi í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna og valdeflingu kvenna á heimsvísu. Áherslusvið UN Women er m.a. að stuðla að auknu jafnrétti kynjanna á atvinnumarkaði, auka atvinnuþáttöku og stuðla að frekari tækifærum fyrir konur á vinnumarkaði. Jafnframt að stuðla að því að jafnréttismál og samfélagsábyrgð séu höfð að leiðarljósi í starfsemi fyrirtækja. Jafnréttissáttmálinn (WEP) er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra starfshátta, óháð landi og atvinnugrein og snúa viðmiðin fyrst og fremst að kynjajafnrétti.
Full þátttaka kvenna innan fyrirtækja er forsenda góðra viðskiptahátta; nú til dags sem og í framtíðinni.
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra heiðraði Rio Tinto Alcan á Ísland með Hvatningarverðlaunum jafnréttismála. „Þetta fyrirtæki hefur með markvissum hætti stuðlað að jafnrétti í starfsemi sinni um árabil. Stjórnendur fyrirtækisins hafa með eftirtektarverðum hætti breytt menningu fyrirtækisins svo bæði kynin eiga þar nú jafna möguleika til starfsframa og þar er stuðlað að launajafnrétti. Árangur fyrirtækisins er sérstaklega eftirtektarverður þar sem starfssvið þess var um áratugaskeið álitið starfsvettvangur þar sem einungis karlar ættu heima. Forstjóri fyrirtækisins hefur, ásamt stjórnendateymi sínu, stuðlað að aukinni vitund í samfélaginu um kynjajafnrétti og sýnt að aukið jafnrétti stuðlar að aukinni hagsæld,“ segir í áliti frá dómnefnd. Í henni sátu: Inga Jóna Þórðardóttir, formaður, fyrir hönd atvinnuvegaráðuneytisins, Magnús Árni Magnússon, fyrir hönd landsnefndar UN Women á Íslandi, Bergþóra Halldórsdóttir, fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins og Ketill Berg Magnússon, fyrir hönd Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð
Að verðlaununum standa Atvinnuvegaráðuneytið, UN Women á Íslandi, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Samtök atvinnulífsins.
Ráðstefnan var fjölsótt og átti sér stað áhugaverð umræða um jafnréttismál og hvernig hægt er að stuðla að frekara jafnrétti á vinnumarkaði og nauðsyn þess að Ísland haldi áfram að vera til fyrirmyndar í jafnréttismálum.

