Ríflega 800 þúsund krónur til styrktar UNIFEM

Heim / Fréttir / Ríflega 800 þúsund krónur til styrktar UNIFEM

mynd_5Ríflega 800 þúsund krónur söfnuðust á tvennum tónleikum hins heimsfræga fiðluleikara Gilles Apap í Grafarvogskirkju 7. okóber sl.  Allur aðgangseyrir tónleikanna rann í Styrktarsjóð UNIFEM til afnám ofbeldis gegn konum. Tónleikarnir  voru síðustu tónleikarnir í röð ferna tónleika sem Gilles hélt í þessari Íslandheimsókn sinni, sem Hjörleifur Valsson fiðluleikari hafði veg og vanda af að skipuleggja. Sjóvá-Almennar tryggingar hf. var styrktaraðili tónleikanna og Ingunn Wernersdóttir sérstakur verndari þeirra.

UNIFEM á Íslandi þakkar aðstandendum tónleikanna fyrir dýrmætan stuðning.

Related Posts