Rauð yfirtaka í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna

Heim / Fréttir / Rauð yfirtaka í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna

Það var fullt hús á viðburði UN Women á Íslandi. Myndir/Michele Mecozzi

Fullt var út að dyrum á viðburði UN Women á Íslandi í tilefni alþjóðlegs baráttudags kvenna, sem haldinn er hátíðlegur um allan heim þann 8. mars ár hvert. Við það tilefni ýttu UN Women á Íslandi formlega úr vör heimsherferð í þágu jafnréttis – March Forward. Herferðinni er ætlað að skapa hreyfingu og hvetja fólk til að taka afstöðu gegn því bakslagi sem orðið hefur í jafnréttismálum um allan heim.

Viðburðurinn hófst með gríðarlega áhrifamiklum gjörningi, Yfirtöku, sem umlukti allan salinn og áhorfendur. Gjörningurinn er verk danshöfundarins Önnu Kolfinnu Kuran og var í flutningi Kvennakórs Reykjavíkur, Domusvox – félaga úr Stúlknakór Reykjavíkur og Aurora og Skólakórs Kársness. Þá sungu kórarnir lögin Dropi og Krumlu ásamt Karlakórnum Fóstbræðum í útsetningu Tuma Torfasonar og Árna Harðarsonar.

 

Þróunin er ekki tilviljun

Utanríkisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók til máls á viðburðinum og fluttu Guðrún Ágústsdóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Grace Achieng og Stella Samúelsdóttir einnig erindi í tilefni dagsins.

„Um allan heim verða konur og hinsegin fólk nú fyrir kerfisbundinni afturför í réttindum sínum. Jafnvel í lýðræðisríkjum sem við berum okkur saman við hafa nú verið sett lög sem skerða rétt þessara hópa.  Í fjórðungi (25%) ríkja heims varð afturför í jafnréttismálum á síðasta ári!

Þessi þróun er ekki tilviljun. Hún er meðvituð. Hún er skipulögð aðför að jafnrétti. Við sem störfum að jafnréttismálum höfum talað um hana í þó nokkurn tíma, en nú er hún orðin sýnileg öllum sem vilja sjá. Og hún á sér ekki aðeins stað í fjarlægum löndum, heldur í nágrenni okkar,“ sagði Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women á Íslandi, í erindi sínu.

Viðburðurinn er styrktur af Reykjavíkurborg, Sendinefnd ESB á Íslandi og Berjaya Iceland Hotels. Sérstakar þakkir hljóta Kvennasögusafn Íslands, Anna Kolfinna Kuran, Tumi Torfason, Karlakórinn Fóstbræður, Kvennakór Reykjavíkur, Domusvox – félaga úr Stúlknakór Reykjavíkur og Aurora og Skólakór Kársness.

 

Af hverju er herferðin nauðsynleg?

Konur og hinsegin fólk um allan heim standa frammi fyrir alvarlegu bakslagi mannréttinda sinna:

  • 25% ríkisstjórna greindu frá afturför réttinda kvenna árið 2024.
  • Á 10 mínútna fresti er kona drepin af nákomnum aðila.
  • Kynbundið ofbeldi hefur aukist í flestum ríkjum heims, bæði innan heimilis og á opinberum vettvangi.
  • Árið 2024 voru aðeins 5 konur kjörnar þjóðarleiðtogar í 31 forsetakosningu á heimsvísu, sem sýnir að hindranir standa enn í vegi fyrir að konur komist í leiðtogastöður.
  • Efnahagslegt misrétti heldur áfram að vaxa. Konur vinna að meðaltali ólaunuð heimilisstörf að jafnvirði 1.400.000 milljarða á ári.
  • 50% aukning hefur orðið á fjölda kvenna og stúlkna sem búa við átök síðastliðinn áratug.
  • Kynbundinn launamunur mun ekki jafnast út fyrr en eftir 135 ár að óbreyttu.
  • Víða hafa lög um kynrænt sjálfræði verið felld úr gildi

 

Related Posts
Myndir: Snorri Sturluson og Florian Hofer