
Rafmagnsleysi í Úkraínu hamlar námi barna. UNICEF/UN0747379/Filippov
Árásir rússneska hersins á orkuinnviði Úkraínu hafa haft mikil áhrif á daglegt líf almennra borgara. Langvarandi rafmagnsskortur hefur ekki aðeins áhrif á almennan heimilisrekstur, heldur einnig atvinnulífið.
Iryna Fishchuk rekur bakarí og kaffihús í borginni Ivano-Frankivsk, sem staðsett er í vesturhluta Úkraínu. Hjá Irynu starfa konur sem þvingaðar voru á flótta þegar Rússland hóf innrás sína. Iryna segir rafmagnsleysið skapa mjög erfitt rekstrarumhverfi.
Hún hefur ítrekað neyðst til þess að loka bakaríinu sökum rafmagnsskorts, því ekki sé hægt að baka brauð án rafmagns. Lokanirnar skerða tekjur fyrirtækisins og um leið launagreiðslur til starfsfólks. „Þegar veturinn kemur er þetta spurning um líf og dauða fyrir lítið fyrirtæki eins og mitt og það hefur bein áhrif á afkomu kvennanna sem hjá mér starfa,“ útskýrir hún.
Iryna tekur fram að rafmagnsleysið hafi ekki aðeins áhrif á daglegt líf fólks, heldur hafi það einnig neikvæð áhrif á andlega líðan þess.
Síðan innrás Rússa hófst í febrúar árið 2022 hefur rússneski herinn gert ítrekaðar árásir á orkuver og orkuinnviði Úkraínu. Í nóvember upplýsti Volodymyr Zelenskyy, forseti landsins, að í það minnsta 1.120 árásir hefðu verið gerðar á orkuinnviði landsins frá upphafi stríðsins. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaskrifstofu SÞ voru níu árásir gerðar á orkuinnviði Úkraínu yfir fimm mánaða tímabil árið 2024, frá 22. mars til 31. ágúst.
Skert orkuframleiðsla hefur áhrif á alla íbúa Úkraínu, ekki aðeins þau sem búa á átakasvæðum eða í grennd við víglínuna, og þá einkum yfir vetrarmánuðina, þegar orkunotkun íbúa eykst að jafnaði um 25 prósent.
Geta hvorki stundað nám né vinnu
Nataliia Chermoshentseva, sérfræðingur í jafnréttismálum, segir orkuskort og rafmagnsleysi hafa mikil áhrif á dagleg störf kvenna og stúlkna því þær sjái að mestu um heimilið og umönnunarstörf. Það séu jafnframt konur sem taki að sér að afla eldiviðar. Rafmagnsleysið hefur það einnig í för með sér að úkraínsk börn geta ekki stundað nám. Mikill fjöldi barna hefur þurft að stunda fjarnám frá upphafi stríðsins.
„Úkraína hefur verið eitt af fremstu ríkjum heims þegar kemur að stafrænni væðingu. Fjölþætt opinber þjónusta, líkt og félagsþjónusta, er að mestu orðin rafræn í dag. Rafmagnsleysi hefur mikil og takmarkandi áhrif á þessa þjónustu. Það er afskaplega mikilvægt að hægt sé að treysta á að neyðartilkynningar í gegnum farsíma og upplýsingar um neyðarskýli berist fólki. Við treystum á þessa þjónustu til að halda lífi,“ útskýrir Nataliia.
„Þegar við tölum um áhrif stríðs á fólk, þá verður að hafa í huga að stríð hefur önnur og oft meiri áhrif á konur en karla. Hið sama á við þegar orkuskortur ríkir, það er ekki kynhlutlaust vandamál,“ segir Nataliia.
Styður við atvinnusköpun kvenna
Frá upphafi stríðsins hefur UN Women í Úkraínu lagt áherslu á að styðja við kvenrekin fyrirtæki og skapa konum á flótta atvinnutækifæri. Þetta er gert með beinum fjárstyrkjum, starfsþjálfun og leiðsögn.

Haninn sem orðinn er táknmynd seiglu fólks í Úkraínu.
Fjárstuðningur frá íslenskum almenningi og UN Women á Íslandi gerði UN Women í Úkraínu kleift að stofnsetja verkefnið Pochatuk – sem þýðir „upphaf“. Verkefnið styður við atvinnusköpun úkraínskra kvenna og hefur frá upphafi stutt við um 6.000 úkraínskar athafnakonur. Konurnar hlutu sálræna aðstoð og sátu námskeið í rekstri og áætlanagerð. Fyrirtækin sem stofnuð voru í gegnum Pochatuk eru í dag rekin með hagnaði og styðja því ekki aðeins við konurnar og fjölskyldur þeirra, heldur einnig nærsamfélög sín.
Eitt þeirra fyrirtækja sem varð til fyrir tilstilli Pochatuk er lítil kertagerð sem framleiðir m.a. handgerð kerti í laginu eins og hani. Form kertisins er innblásið af ljósmynd sem tekin var eftir sprengjuárás á bæinn Borodyanka. Á myndinni sjást rústir íbúðarhúss en það eina sem eftir stendur af byggingunni er eldhússkápur og keramíkstytta af hana. Hanninn, sem stendur óskemmdur og hnarreistur í sprengjurústunum, varð táknmynd staðfestu og eldmóðs úkraínsku þjóðarinnar andspænis árásarhernum.
UN Women á Íslandi þakkar þann ómetanlega stuðning sem almenningur hefur sýnt neyðarsöfnunum samtakanna í gegnum árin. Ykkar framlag skiptir máli.

