
Amani Al Derbi, fyrir miðju, sést hér ásamt fjórum börnum sínum. Amani og börn hennar létu lífið í loftárás á Gaza 7. maí 2024. Myndin er úr einkasafni Amani Al Derbi og er birt með leyfi.
Hin 35 ára gamla Amani Al Derbi var harðdugleg móðir og starfaði sem sálmeðferðarfræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu á Gaza. Hún brann fyrir því að hjálpa fólki sem var í áfalli eftir áralöng stríðsátök.
Eftir að stríðið á Gaza hófst í október síðastliðnum deildi UN Women sögu Amani og hvernig hún komst af í borginni Rafah. Á þeim tíma—í nóvember 2023—var Rafah tiltölulega örugg frá loftárásum og innrás Ísraelshers, en Amani bjó í borginni með eiginmanni sínum Mohammad og fjórum börnum þeirra: Firas, 17 ára; Hanan, 16 ára; Amir, 12 ára; og Mustafa, 11 ára.
Á meðan Ísraelar auka við hernaðaraðgerðir sínar á suðurhluta Gaza, hefur UN Women varað við auknum dauðsföllum og örvæntingu óbreyttra borgara í Rafah. Undanfarna mánuði leituðu Amani og fjölskylda hennar í örvæntingu að öryggi, en þau voru á vergangi og þurftu að flytja sig fimm sinnum um set.
En það er enginn öruggur staður á Gaza. UN Women hefur fengið þær hræðilegu fréttir að loftárás sem gerð var snemma morguns þriðjudaginn 7. maí drap Amani og fjögur börn hennar. Mohammad slasaðist alvarlega en var sá eini úr fjölskyldunni sem komst lífs af.
Þegar UN Women ræddi við Amani í nóvember síðastliðnum syrgði hún fráfall Lamiu vinkonu sinnar og lýsti áhyggjum af framtíð Firasar sonar síns og sagði: „Draumum og vonum barna minna hefur verið þjappað saman í eina, mikilvæga bón: að lifa af.”
Dauði Amani, Lamiu og þúsunda annarra kvenna og barna þeirra sýnir að stríðið á Gaza er líka stríð gegn konum – gegn mæðrum, dætrum, systrum, læknum, leiðtogum og fleirum. Hvert týnt líf er ekki bara tala, heldur rödd sem hefur þagnað, framtíð sem aldrei verður.

Amani Al Derbi sést hér með börnum sínum. Mynd birt með leyfi Amani Al Derbi.
Alþjóðasamfélagið hefur misst „siðferðislega áttavitann“ þegar kemur að Gaza
Alþjóðasamfélagið hefur misst „siðferðislega áttavitann“ þegar kemur að Gaza, harmaði Amina Mohammed aðstoðarframkvæmdastýra Sameinuðu þjóðanna í apríl. Yfir 10.000 konur hafa verið drepnar af ísraelskum hermönnum síðan 7. október og meira en 19.000 hafa særst. Tugir mæðra hafa verið drepnar á hverjum degi.
Stríðið batt enda á sögu Amani, en styrkur hennar, andi og kraftur mun lifa áfram.
UN Women heldur áfram að kalla eftir tafarlausu vopnahléi á Gaza. Starfsfólk samtakanna er ennþá á vettvangi, en það sér um að dreifa hjálpargögnum þegar þau berast ásamt því að safna saman gögnum og vitnisburðum kvenna. Innrásin í Rafah og lokunin á „Rafah crossing“, einu leiðinni inn á Gaza-svæðið, hefur heft aðgengi að hjálpargögnum töluvert og er þetta áskorun sem UN Women stendur frammi fyrir ásamt öðrum stofnunum og aðilum Sameinuðu þjóðanna. Ástandið á Gaza er stöðugt að breytast og krefst getu til að aðlagast hratt og mæta aðstæðum og þörfum fólks. UN Women veitir kvennasamtökum á svæðinu fjárhagslegan stuðning til að mæta þörfum kvenna og að auki dreifir UN Women hreinlætisvörum til kvenna í samvinnu við samstarfsaðila á Gaza.
Neyðin á Gaza er gífurleg
UN Women hefur starfað í Palestínu frá árinu 1997 og starfrækt þar ýmis verkefni í þágu kvenna og stúlkna. Við erum á vettvangi og munum áfram veita mikilvægan stuðning og aðstoð í samstarfi við palestínsk kvennasamtök og aðra samstarfsaðila innan mannúðarkerfisins.
Þú getur stutt áfram við konur og stúlkur á Gaza með stökum styrk, með AUR í númerið 123-839-0700 eða með því að senda sms-ið KONUR í númerið 1900 (2.900 krónur – virkar ekki fyrir þau hjá Vodafone).

