Það er staðfest að tíðni mæðra- og ungbarnadauða margfaldast á tímum stríðsátaka. Ástæðurnar fyrir því eru margar. Þær augljósustu eru að konur á átakasvæðum búa við skerta eða enga heilbrigðisþjónustu, aukið líkamlegt- og andlegt álag, fæðuskort og þeim reynist erfiðara að viðhalda nauðsynlegu hreinlæti á stríðstímum vegna skorts á vatni og hreinlætisvörum.
UN Women tryggir kvenmiðaða heilbrigðisþjónustu á átakasvæðum með því að styðja við þjálfun ljósmæðra og veita þeim nauðsynleg tól og tæki. UN Women tryggir einnig að upplýsingagjöf til barnshafandi kvenna og nýbakaðra mæðra í flóttamannabúðum og neyðarskýlum sé góð og aðgengileg.
Um 70% kvenna á átakasvæðum hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi. Upplýsingar frá ýmsum átakasvæðum líkt og Úkraínu, Gaza og Súdan styðja við þessar tölur. Stríðandi fylkingar hafa beitt nauðgunum sem stríðsvopni, heimilisofbeldi eykst og kynferðisleg áreitni og -ofbeldi einnig. Mansal eykst vegna veikrar stöðu fólks og barna á flótta og jafnframt tíðni þvingaðra barnahjónabanda.
UN Women veitir fjárhagslegan stuðning til kvenrekinna grasrótarsamtaka og kvennaathvarfa svo þau geti haldið úti nauðsynlegri þjónustu til þolenda þegar neyðin er hvað mest. UN Women hefur að undanförnu lagt aukna áherslu á að veita konum í stríðshrjáðum löndum fjárhagslegan stuðning án skuldbindinga svo þær geti greitt fyrir húsaskjól, matvörur og aðrar nauðsynjar.
Kynjajafnrétti á æðstu stöðum verður ekki náð fyrr en eftir 130 ár haldi þróunin áfram á þeim hraða sem við erum á í dag. Ósanngjörn lög, menning og hefðir skerða jafnframt tækifæri kvenna á fullri þátttöku í stjórnmálum og opinberu lífi. Þessi mismunun hindrar konur m.a. frá því að taka þátt í stjórnmálum, lagasetningum og sáttar- og friðarviðræðum á átakatímum, sem þykir þó lykilforsenda þess að varanlegur friður náist.
UN Women veitir konum leiðtogaþjálfun, styður við kvenkyns frambjóðendur með því að veita þeim vernd, þjálfun og fjárstuðning. Ólíkt körlum, hafa konur í sumum ríkjum ekki efni á því að bjóða sig fram vegna skertra lagalegra réttinda. UN Women veitir fræðslu til almennings og stjórnvalda um mikilvægi þess að jafna hlut kvenna og annarra hópa í stjórnmálum
Þegar stríðsátök og hamfarir geisa, ýtir það undir og margfaldar þann ójöfnuð og þá fordóma sem voru til staðar innan samfélagsins. Jaðarsettir hópar upplifa því enn meiri fordóma, jaðarsetningu, ofbeldi og fátækt
UN Women vinnur eftir þeirri hugsjón að enginn verði útundan (e. leave no one behind) og á hún einnig við á tímum stríðsátaka og hamfara. UN Women veitir jaðarsettum hópum örugg rými og sinnir þarfagreiningum svo hægt sé að mæta þörfum allra. Án góðra þarfagreininga halda konur og jaðarsettir hópar áfram að vera ósýnilegir þegar neyðaraðstoð er veitt.
Þar sem viðbragðsaðilar, starfsfólk félagasamtaka og þau sem stýra ákvarðanatökum eru oftar en ekki karlmenn, gleymast grunnþarfir kvenna og stúlkna iðulega þegar neyðaraðstoð er veitt og flóttamannabúðum er komið upp. Einföld atriði á borð við staðsetningu salernis- og þvottaaðstöðu, þjálfun friðargæsluliða og innihald matarpakka geta aukið öryggi og velferð kvenna og stúlkna til muna.
UN Women er ráðgefandi stofnun þegar kemur að málefnum kvenna á flótta. Stofnunin hefur vakið athygli á mikilvægi þess að konur hafi aðgang að öruggri salernis- og baðaðstöðu og að vatnsból séu mönnuð vel þjálfuðum friðargæsluliðum til að tryggja öryggi kvenna. UN Women hefur unnið að því að barnshafandi konur, einstæðar mæður, fólk með fatlanir og aðrir jaðarsettir hópar fái úthlutað matarpökkum til sín. Jafnframt að matarpakkarnir taki tillit til næringarþarfa barna og barnshafandi kvenna.
Í flóttamannabúðum og neyðarskýlum þarf að byrja á því að veita konum á flótta upplýsingar um réttindi þeirra á nýjum stað, næstu skref, þá þjónustu sem í boði er og þær samfélagslegu reglur sem eru við lýði í nýju samfélagi. Upplýsingarnar þurfa helst að vera aðgengilegar á móðurmálinu og þeim þarf að vera miðlað á þann hátt að þær séu aðgengilegar.
UN Women rekur „one stop shop“ miðstöðvar sem eiga að vera fyrsti viðkomustaður kvenna á flótta þar sem þær hljóta þjónustu og allar nauðsynlegar upplýsingar um næstu skref. UN Women styður einnig við kvenrekin grasrótarsamtök þar sem passað er upp á að konur á flótta geti komið áhyggjum sínum og þörfum á framfæri á öruggan hátt og þannig að brugðist sé við þeim.