Kraftur kvikmyndanna er mikill ef marka má viðtökur og áhrif óskarverðlaunamyndarinnar A Girl in the River – The Road to Forgiveness sem vann Óskarinn síðastliðinn sunnudag fyrir bestu heimildarmyndina (stutt).
Myndin fjallar um svokölluð heiðursmorð sem eru útbreitt vandamál í Pakistan og víðar. Talið er að í kringum eitt þúsund konur séu myrtar ár hvert þar í landi í því skyni að verja meintan heiður fjölskyldunnar- einkum karlmanna.
Konur hafa verið drepnar fyrir að ganga í fötum sem talin eru óviðeigandi, sækja um skilnað frá ofbeldisfullum eiginmanni, eiga í sambandi við karlmann utan hjónabands, eða jafnvel fyrir að hafa verið nauðgað.
Heiðursmorð eru ein hörmulegasta birtingarmynd þess að konum og stúlkum er neitað um grundvallarmannréttindi og þær sviptar ákvörðunarvaldi um eigið líf.
Haldin var sérstök sýning á myndinni í Íslamabad fyrir forsætisráðherra landsins, Nawaz Sharif í samstarfi við UN Women. Eftir sýninguna ítrekaði forsætisráðherrann skuldbindingu Pakistan að enda alla mismunun og ofbeldi í garð kvenna og stúlkna.
„Það er enginn heiður í því að fremja heiðursmorð. Það er ekkert eins hrottalegt og að myrða í nafni heiðurs,“ sagði forsætisráðherrann eftir sýninguna og hét því að herða refsirammann enn frekar hvað heiðursmorð varðar og styrkja löggjöf er snýr að ofbeldi gegn konum og stúlkum.
Þetta er önnur heimildarmynd leikstjórans Sharmeen Baid-Chinoy sem vann einnig til verðlauna fyrir heimildarmyndina Saving Face fyrir fjórum árum. Sú mynd fjallaði um sýruárásir.
Eftir sýninguna með forsætisráðherra sagði hún: „Skilaboð myndarinnar eru skýr og minn helsti sigur felst í að hafa fangað athygli ykkar, forsætisráðherra og þingmanna.“
Þrátt fyrir ákvæði í alþjóðlegum sáttmálum og landslögum skortir samfélagslega vitund um að heiðursmorð séu raunverulega glæpur. Skilvirkasta leiðin til þess að koma í veg fyrir heiðursmorð er FRÆÐSLA; að koma karlmönnum í skilning um að stolt þeirra og heiður felast ekki í því að myrða dóttur eða systur, heldur í því að bera virðingu fyrir mannréttindum og sjálfsákvörðunarrétti kvenna. Hefðir sem kenndar eru við menningu eru ekki lögmál, heldur venjur sem má breyta.
UN Women styrkir verkefni sem stuðla að viðhorfsbreytingu, til dæmis með því að leita liðsinnis trúarleiðtoga, kennara og annarra áhrifavalda í samfélögum; jafnframt með því að vinna með stjórnvöldum og félagasamtökum.
Horfa á stiklu

