Nýir verndarar UN Women á Íslandi

Heim / Fréttir / Nýir verndarar UN Women á Íslandi

IMG_3502UN Women á Íslandi kynnti í gær við hátíðlega athöfn við Þvottalaugarnar í Laugardalnum nýja verndara samtakanna í tilefni af appelsínugula deginum sem haldinn er í þriðja sinn í dag.

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mannfræðingur  og Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona munu gegna  hlutverki verndara samtakanna næstu tvö árin. 

Verndarar UN Women á Íslandi hafa það hlutverk  að auka sýnileika samtakanna, vekja almenning til vitundar og stuðla að viðhorfsbreytingu hvað málefni kvenna í fátækustu löndum heims varðar.

Sigríður Dúna og Unnur Ösp hafa báðar verið ötular málskonur fyrir bættum hag kvenna og fagna samtökin því að þessar kjarnakonur hafi samþykkt að leggja þessum mikilvæga málstað lið.

Við þvottalaugarnar var gróðursett Ilmbjörk til heiðurs konum um heim allan. Gróðursetning var í höndum Sigríðar Dúnu og Unnar Aspar og innsigldu þær þar með hlutverk sitt og ósk okkar allrar um samfélag þar sem jafnrétti kynjanna og mannréttindi ríkja.

Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir  og Þorsteinn Bachmann fluttu erindi  við athöfnina. Því næst var fagnað á Café Flóru í Grasagarðinum sem var sérstaklega skreytt appelsínugulu í tilefni dagsins.

Related Posts