Ný stjórn hefur störf

Heim / Fréttir / Ný stjórn hefur störf

stjrn_005Brotið var blað í sögu Landsnefndar UN Women í gær þegar tveir karlmenn fengu sæti í stjórn félagsins. Þetta eru einnig markverð tíðindi á alþjóðavísu því íslenska landsnefndin er sú fyrsta af 18 sem fær karlmenn til liðs við sig.

Ragna Sara Jónsdóttir, þróunar- og viðskiptafræðingur· lét af formennsku UN Women á Íslandi en við tók Regína Bjarnadóttir, þróunarhagfræðingur.

Í stjórn UN Women á Íslandi sitja nú: Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Magnús Árni Magnússon dósent, Þórey Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir framhaldsskólakennari, Ólafur Stephensen ritstjóri, Margrét Rósa Jochumsdóttir þróunarfræðingur, Olga Eleonora Egonsdóttir fjármálafræðingur og Aðalheiður Þorsteinsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur.

Í varastjórn sitja Ragna Sara Jónsdóttir og Pálína Björk Matthíasdóttir.

Á mynd frá vinstri: Ólafur Stephensen, Magnús Árni Magnússon, Olga Eleonora Egonsdóttir, Hanna Björg Vihjálmsdóttir, Ólöf Ýrr Atladóttir, Regína Bjarnadóttir, Þórey Vilhjálmsdóttir, Ragna Sara Jónsdóttir, Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Margrét Rósa Jochumsdóttir.

UN Women þakkar fráfarandi stjórn kærlega fyrir vel unnin störf.

Stjórn UN Women (áður UNIFEM) 2010-2011:

Formaður

Ragna Sara Jónsdóttir, þróunar- og viðskiptafræðingur

Varaformaður

Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari

Gjaldkeri

Olga Eleonora M. Egonsdóttir, fjármálahagfræðingur

Elsa Guðmundsdóttir, fjármálastjóri var gjaldkeri fram á mitt ár en þurfti frá að hverfa vegna annarra verkefna.

Meðstjórnendur

Birna Guðmundsdóttir, sölu- og markaðsstjóri

Hildur Fjóla Antonsdóttir, verkefnastjóri

Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri

Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri

Regína Bjarnadóttir, þróunarhagfræðingur

Varastjórn

Arna Garðarsdóttir, starfsmannastjóri

Sigríður Erla Jónsdóttir, viðskiptafræðingur

Related Posts