Ný heimsmarkmið tóku gildi nú um áramótin

Heim / Fréttir / Ný heimsmarkmið tóku gildi nú um áramótin

markmiðinímyndNý heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna tóku gildi nú um áramótin.

Síðastliðið haust voru ný heimsmarkmið fastákveðin í New York. Þá komu tvö hundruð þjóðarleiðtogar og staðfestu nýju markmiðin til ársins 2030 en þau tóku við af Þúsaldarmarkmiðunum sem sleppti nú um áramótin.
Markmiðin eru 17 talsins og hafa alls 169 undirmarkmið. Fimmta markmiðið sem snýr að því að tryggja jafnrétti kynjanna hefur verið talið hið brýnasta þar sem það helst í hendur við öll hin markmiðin. Ómögulegt er að ná hinum 16 heimsmarkmiðunum án þess fimmta – Jafnrétti kynjanna. Það er ekki hægt að sigra með aðeins helming liðsins.
Konur og stúlkur er meira helmingur íbúa jarðar. Þær verða oftar verr fyrir barði fátæktar, loftslagsbreytinga, skorti á heilbrigðisþjónustu og efnahagskreppum.
Nýju heimsmarkmiðin fela öll í sér leiðir til að uppræta þennan vanda, mismunun kynjanna. Á næstu dögum ætlum við að skoða hvernig jafnrétti helst í hendur við öll, sautján markmiðin og hvernig verkefni UN Women víðs vegar um heiminn miða að upprætingu vandans. En byrjum á að skoða fimmta markmiðið.

5. Tryggja jafnrétti kynjanna og styrkja frumkvæðisrétt allra kvenna og stúlkna
5.1 Mismunun í allri mynd gagnvart öllum konum og stúlkum verði útrýmt alls staðar.
5.2 Ofbeldi í allri mynd gagnvart öllum konum og stúlkum í félagslífi og einkalífi, þar með talið mansal og kynferðisleg misneyting og misneyting af öðru tagi, verði útrýmt.
5.3 Öllum skaðlegum siðum, eins og barnahjónaböndum, snemmbúnum og þvinguðum hjónaböndum og limlestingu kynfæra kvenna, verði útrýmt.
5.4 Viðurkennd verði, og metin sem viðeigandi innanlands, umönnun og heimilisstörf, sem ekki er greitt fyrir, með því að láta í té opinbera þjónustu, með tilteknum innviðum og stefnum á sviði félagslegrar verndar og með því að ýta undir sameiginlega ábyrgð innan heimilis og fjölskyldu.
5.5 Tryggð verði full og árangursrík þátttaka kvenna og jöfn tækifæri þeirra til að vera leiðandi í ákvarðanatöku á öllum stigum í stjórnmálalífi, efnahagslífi og opinberu lífi.
5.6 Tryggt verði að almenningur hafi tækifæri til að öðlast kynferðislegt heilbrigði og frjósemisheilbrigði og -réttindi, eins og samþykkt er samkvæmt aðgerðaáætlun alþjóðaráðstefnunnar um mannfjölda og þróun og Beijing-aðgerðaáætluninni og niðurstöðum endurskoðunarráðstefna þeirra.
5.a Gerðar verði endurbætur til þess að konur eigi jafnan rétt til efnahagsbjargráða og geti öðlast eignarhald á og yfirráð yfir landi og eignum í annarri mynd, fengið aðgang að fjármálaþjónustu, tekið arf og haft aðgang að náttúruauðlindum í samræmi við landslög.
5.b Notkun stuðningstækni verði efld, einkum upplýsinga- og fjarskiptatækni, í því skyni að stuðla að valdeflingu kvenna.
5.c Vel unnin stefnumál og fullnustuhæf löggjöf verði samþykkt til þess að stuðla að kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna á öllum stigum

Gera þarf nauðsynlegar lagabreytingar til að tryggja réttindi kvenna um allan heim. 143 þjóðir hafa sett skilyrði í stjórnarskrá þess efnis að konur og karlar standi jafnfætis, 52 þjóðir hafa hins vegar ekki samþykkt skilyrðið. Í mörgum ríkjum er enn mismunað á grundvelli kyns og er slík kynbundin mismunun samofin lagalegum og félagslegum venjum.
Bláköld kynjamismunun viðhefst á efnahagslegum og pólitískum vettvangi. Þrátt fyrir þann árangur sem náð hefur á undanförnum áratugum, þéna konur enn 24% minna en karlmenn á heimsvísu. Eins árið 2015, eru starfandi þingkonur á heimsvísu aðeins 22% allra þingmanna.

UN Women er eina stofnun Sameinuðu þjóðanna sem vinnur eingöngu í þágu kvenna og jafnréttis um heim allan og veitir tæknilegan og fjárhagslegan stuðning til verkefna sem ætlað er að efla réttindi kvenna, þátttöku þeirra í stjórnmálum, efnahagslegt sjálfstæði og verkefni sem stuðla að afnámi ofbeldis gegn konum og stúlkum.

Related Posts