
UN Women hefur stutt kvenbændur í Malaví í að bregðast við loftslagsbreytingum með breyttum atvinnuháttum.
Aðalfundur stjórnar UN Women fór fram í New York í síðustu viku. Ísland er í varaforsæti stjórnar UN Women og stýrði fundum. Til umræðu var ný ársskýrsla UN Women en einnig var farið yfir þætti í stefnumótandi áætlun UN Women um málefni kvenna og stúlkna.
Ástandið ekki batnað
Á aðalfundinum flutti Jörundur Valtýrsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, ræðu fyrir hönd Norðurlandanna um nýja ársskýrslu. Hann benti á að bakslag hefur orðið í atvinnuþátttöku kvenna og að fleiri konur búi nú við sárafátækt en áður. Þá ítrekaði hann að afleiðingar COVID-19 hafi sýnt fram á mikilvægi þess að konur njóti félagslegra réttinda og að aðgerðaráætlanir taki mið af kynjasjónarmiðum.
„Þegar stjórn hittist síðast, létum við í ljós áhyggjur okkar af stöðu kynjajafnréttis í heiminum vegna COVID-19, loftslagsbreytinga og vopnaðra átaka. Ástandið hefur lítt batnað síðan, með alvarlegum áföllum í matvælaöryggi og á orku- og fjármálamarkaði heimsins. Viðkvæmir hópar í fátækari ríkjum heims eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir þessum verðsveiflum, og þá sérstaklega konur og stúlkur. Norðurlöndin trúa því statt og stöðugt að kynjajafnrétti ætti að vera í forgrunni allrar ákvarðanatöku,“ sagði Jörundur í ræðu sinni.
Mikilvægt að Ísland láti rödd sína heyrast

Jörundur Valtýrsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, var á meðal framsögufólks á aðalfundi UN Women.
Ísland tók einnig undir nokkrar ræður annarra ríkja, þ.m.t. ræður Írlands og Bretlands. Írland lagði fram nokkrar spurningar varðandi stefnu og aðgerðir UN Women í loftslagsmálum, mannúðaraðstoð á átakatímum og í kynjaðri gagnaöflun. Bretland gerði Heimsmarkmiðin að umræðuefni og mikilvægi þess að hraða framgangi þeirra, þar sem enn er langt í land að markmið 5 um kynjajafnrétti náist.
UN Women á Íslandi er stolt af því að Ísland sé í varaforsæti stjórnar UN Women, því aldrei hefur verið jafn mikilvægt og nú að ríki sem tala fyrir mannréttindum og kynjajafnrétti láti rödd sína heyrast.

