Aldrei hafa fleiri konur verið á flótta frá því við lok seinni heimstyrjaldarinnar.
Því miður virðist ekkert lát vera á straumnum. Konur og börn eru tæplega helmingur þeirra flóttafólks sem kemur til Evrópu. Oft er þessi ferð farin á hriplekum bátum og í höndum óprúttinna aðila. Margir missa fjölskyldu- og ástvini á þessari leið. Þau sem komast heil á húfi yfir hafið þurfa að leggja á sig langa leið til að komast til norðurhluta Evrópu og fara þá í gegnum Makedóníu og Serbíu. Það ferðalag er ekki síður hættulegt; sérstaklega fyrir konur, stúlkur og börn.
Úttekt UN Women á landamærastöðvum Makedóníu og Serbíu, með þarfir flótta kvenna í huga leiddi í ljós að aðstæður væru ekki sem á best kosnar fyrir konur og börn þeirra. Því sé mikilvægt að bæta aðstæður varnarlausra hópa, líkt og kvenna með börn sín, á landamærunum. Stöðug hætta á ofbeldi, kynferðislegri misnotkun eða mansal vofir yfir konum og stúlkum á flótta. Brotið er kynferðislega á þeim af smyglurum, starfsfólki á landamærum og/eða öðrum flóttamönnum. Konur sem ferðast einar með börn sín og peningalausar eru sérstaklega berskjaldaðar fyrir mansali og kynlífsþrælkun.
Talið er að 12% kvenna sem ferðast yfir Miðjarðarhafið séu með barni, margar eru með börn á brjósti eða ferðast með ungabörn með sér. Fyrir vikið hefur gríðarleg aukning orðið á mæðradauða á meðal flóttakvenna. Nauðsynlegt er því að veita konum nægilega fæðingarþjónustu og ungbarnavernd. Margar þeirra hafa orðið viðskila við eða misst eiginmenn sína á leiðinni og jafnvel tapað aleigunni.
Samkvæmt úttekt UN Women upplifa konur sérstaklega mikla ógn þegar þær fara á óupplýst salerni sem eru fyrir bæði konur og karla á landamærastöðvum. Mörg dæmi eru um að konur hætti að drekka og nærast til að sleppa við að þurfa að nota salernisaðstöðuna af ótta við ofbeldi. Auk þess forðast konur að baða sig í ókynjaskiptri sturtuaðstöðu sem gjarnan eru vel afgirtar og oft óupplýstar. Að sama skapi neyðast konur til að sofa við hliðina á ókunnugum karlmönnum í ókynjaskiptum svefnskálum. Margar konur sniðganga svefnaðstöðuna af ótta við ofbeldi og telja öruggara að sofa einar fjarri búðunum, oft undir berum himni.
UN Women hefur reynt eftir fremsta megni að bregðast við neyð flóttakvenna og lagt áherslu á að nauðsynlegt sé að tryggja eftirfarandi:
• Útvega konum vernd og örugg athvörf við öll landamæri
• Útbúa örugg svefnsvæði fyrir konur og börn þeirra í flóttamannabúðum. Þannig má koma í veg fyrir ofbeldi að næturlagi og veita konum öruggan nætursvefn
• Koma upp aðskildum salernum og sturtuaðstöðu fyrir konur og karlmenn
• Dreifa hreinlætisvörum á borð við dömubindi, tannburstum og ljósluktum til kvenna
Lesa nánar um aðgerðir UN Women við landamæri Makedóníu og Serbíu.
Með einföldum og áhrifaríkum aðgerðum á borð við þessar, má draga úr ofbeldi gegn konum og börnum þeirra og veita konum á flótta vernd og öryggi.
Við hvetjum alla til að senda sms-ið konur í síma 1900. Með 1.000 króna framlagi tekur þú þátt í að bæta líf flóttakvenna. Þú getur einnig lagt þitt af mörkum með því að styrkja konur á flótta með stökum styrk.
Þinn stuðningur skiptir máli!

