
Netlokanir höfðu áhrif á björgunar- og mannúðarstarf í kjölfar jarðskjálftanna í Afganistan.
Þegar talíbanar lokuðu nýverið á aðgang að netinu um allt Afganistan þögguðu þeir endanlega raddir þeirra milljóna kvenna og stúlkna sem þar búa. Fyrir þær sem höfðu aðgang að neti rofnaði síðasta tenging þeirra við umheiminn. Samhliða rofnaði aðgengi þeirra að menntun og vinnu. Margar konur í Afganistan hafa enn ekki aðgang að neti, né síma. Margar hafa ekki öðlast færni í notkun stafrænnar tækni. Þær sem hafa aðgang að henni hafa nýtt hana til að nálgast lífsnauðsynlega þjónustu og halda tengslum við umheiminn.
Nettengingu hefur að mestu verið komið á að nýju í landinu. En skilaboðin voru skýr: Í Afganistan er hægt að loka þessari dýrmætu leið kvenna og stúlkna að menntun, tjáningu og þjónustu hvenær sem er. Afgönskum konum er nú þegar bannað að stunda framhalds- og háskólanám, starfa á flestum sviðum vinnumarkaðarins og sækja opinber rými á borð við almenningsgarða og líkamsræktarstöðvar.
Sambandsleysið leiddi til aukinnar streitu, einangrunar og kvíða meðal afganskra kvenna og stúlkna.
Hvað gerist þegar afganskar konur og stúlkur missa netaðgang?
Í Afganistan bitnar þetta harðast á konum og stúlkum. Fyrir margar hverjar hverfur þar með síðasti möguleikinn til að mennta sig, afla tekna og halda tengslum við aðra. Þegar konur og stúlkur missa aðgang að netinu missa þær jafnframt möguleikann til að:
Fá aðstoð: Þær sem eru nettengdar nota Internetið til að kynna sér þá aðstoð sem er í boði. Hjálparstofnanir treysta á nettengingu til að halda starfi sínu gangandi.
Fá upplýsingar: Nýleg gögn sýna að 9 % kvenna nota Internetið til að nálgast upplýsingar um hamfarir af völdum loftslagsbreytinga.
Leita þjónustu: Internetið hefur verið öflugt tól fyrir þolendur kynbundins ofbeldis til að leita sér aðstoðar
Mennta sig: Fjarnám og leshópar voru bjargráður margra stúlkna eftir að skólasókn þeirra var bönnuð.
Vinna: Netverslun og störf á netinu eru lífsnauðsynleg tekjulind fyrir margar konur sem þurfa að framfleyta fjölskyldum sínum eftir að hafa verið útilokaðar frá vinnumarkaðnum.
Halda tengslum: Samfélagsmiðlar buðu upp á öruggt rými þar sem konur gátu stutt hver aðra og skipst á upplýsingum.
Vera sýnilegar: Fyrir konur sem þegar eru útilokaðar frá opinberu lífi er stafræni heimurinn eitt síðasta rýmið þar sem þær geta átt í samskiptum og veitt mótspyrnu.
Sambandsleysið hamlaði mannúðarstarf
Lokað var á netsamband um allt Afganistan aðeins mánuði eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir austurhluta landsins. Öflugir eftirskjálftar héldu áfram út septembermánuð og neyðar- og mannúðarstarf stóð enn yfir þegar lokað var á netsamband.
Þrátt fyrir margvíslegar hindranir, hafa kvenrekin félagasamtök gegnt lykilhlutverki við að veita lífsnauðsynlega aðstoð og þjónustu til kvenna og stúlkna á jarðskjálftasvæðinu.
Meðan á sambandsleysinu stóð neyddust frjáls félagasamtök til að stöðva mannúðarstarf sitt og hætta vettvangsferðum til hamfarasvæðanna. Þau gátu hvorki greitt út laun né pantað vörur fyrir mannúðarstarf.
Vegna sambandsleysisins urðu bankar óaðgengilegir og gátu konur á hamfarasvæðunum ekki nálgast neyðarstyrki fyrir nauðsynjum eins og mat.
Sambandsleysið gerði það einnig mun erfiðara fyrir þolendur kynbundins ofbeldis að leita sér aðstoðar. Á sama tíma jókst spenna á heimilum með aukinni hættu á kynbundnu ofbeldi.
Rof á netsambandi skerðir tekjur afganskra kvenna
Í Afganistan hefur fjöldi tilskipana sem banna konum að starfa við flest störf og takmarka ferðafrelsi þeirra, kerfisbundið ýtt þeim út úr opinberu lífi. Fyrir margar konur er netið einn fárra vettvanga þar sem þær geta unnið, byggt upp smáfyrirtæki og selt vörur sínar. Svo sem hnetur, krydd, handverk, föt og listaverk, bæði til viðskiptavina innan Afganistan og erlendis.
„Það er ekkert rými fyrir okkur til að vinna utan heimilisins,“ segir Sama*, eigandi lítillar verslunar í Parwan í austurhluta Afganistans. „Hér er heldur enginn markaður þar sem við getum sýnt og selt vörur okkar.“ Með stuðningi UN Women stofnaði Sama netverslun þar sem hún selur heklaðar töskur, veski og skartgripi. „Í gegnum netverslunina mína varð ég þekkt,“ segir hún. „Ég er að þéna peninga, leysa fjárhagsvanda minn og orðin sjálfbjarga.“
Þegar lokað var á nettengingu misstu konur eins og Sama einu tekjulynd sína. Skýr áminning um að netsamband er fyrir margar afganskar konur lífsnauðsyn, ekki munaður.
Hvernig UN Women styður konur og stúlkur í Afganistan
Með verkefninu Rebuilding the Women’s Movement, hefur UN Women í Afganistan unnið með 140 kvenreknum félagasamtökum í 24 héruðum og tryggt 743 konum laun og þjálfun. Þannig hefur stofnunin styrkt viðnámsþrótt og getu kvenna þrátt fyrir víðtækar takmarkanir.

