Þann 14. febrúar 2013 kom saman einn milljarður manna í 207 löndum og dansaði í tilefni af Milljarður rís. Íslendingar létu sitt ekki eftir liggja og 2100 menn, konur og börn á öllum aldri komu saman í Hörpu og dönsuðu af lífi og sál.Íslendingar tóku þátt í femínískri flóðbylgju og létu jörðina hristast með samtakamætti sínum.
Í ár ætlar UN Women í samstarfi við tónlistarhátíðina Sónar og Lunchbeat að endurtaka leikinn og markmiðið er að fá 3000 manns til að taka þátt. Dj Margeir mun sjá til þess að dansinn duni.
Einnig verður dansað á Hofi á Akureyri, félagsheimilinu Herðubreið á Seyðisfirði og á Ísafirði.
UN Women hvetur alla til að taka þátt í Milljarður rís og láta að sér kveða. Samtökin skora jafnframt á fyrirtæki, stofnanir og skóla til að hvetja starfsfólk sitt að mæta í Hörpu og sýna samstöðu.
Hægt verður að leggja frítt í Hörpu á meðan viðburðurinn stendur yfir. Við hvetjum fólk til þess að mæta snemma.
Ein af hverjum þremur konum verður fyrir ofbeldi á lífsleiðinni. Í ár ætlum við að dansa af krafti fyrir allar þær konur og stúlkur sem upplifað hafa ofbeldi og sýna í verki að okkur stendur ekki á sama.
Dönsum af gleði og krafti fyrir mannréttindum kvenna, fyrir heimi þar sem konur og stúlkur þurfa ekki að líða ofbeldi vegna kyns síns.
Byltingin hefst stundvíslega kl. 12.
Hægt er að taka þátt í herferðinni á samfélagsmiðlunum með því að setja inn myndir/myndbönd með leitarorðinu/hashtag #milljardurris14.
Related Posts

