Félag Sameinuðu þjóðanna stendur fyrir málþingi í samstarfi við Háskóla Sameinuðu þjóðanna á föstudaginn 21. september nk. kl. 15.00 í Öskju, Háskóla Íslands, um Háskóla SÞ á Íslandi; Jarðhitaskólann, Sjávarútvegsskólann, Landgræðsluskólann og Jafnréttisskólann.
Nemendur í skólunum munu m.a. segja frá reynslu sinni en málþingið er hluti af kynningarátakinu „Þróunarsamvinna ber ávöxt“.
Alls hafa 792 sérfræðingar frá 105 þróunarlöndum lokið sex mánaða sérhæfðu námi við Háskóla SÞ á Íslandi. Jarðhitaskólinn var stofnsettur árið 1978, Sjávarútvegsskólinn árið 1998 og Landgræðsluskólinn árið 2008. Jafnréttisskólinn hóf starfsemi í Háskóla Íslands árið 2009 og verður væntanlega tekinn formlega inn í Háskóla S.þ. í desember nk. en tólf nemendur frá þremur þróunarlöndum hafa þegar lokið sérhæfðu námi við skólann.
Háskóli Sameinuðu þjóðanna var stofnaður árið 1975 til að efla rannsóknir, þekkingu og skilning á málum sem SÞ fjalla um. Eitt aðal markmiðið var að bæta hag þróunarlandanna með því að veita sérfræðingum þaðan starfsþjálfun við alþjóðleg rannsóknarsetur. Stjórnstöð háskólans var opnuð í Tókýó í Japan en í stað þess að byggja skólahús og rannsóknarstofur víða um heim voru aðildarlönd SÞ hvött til að opna dyr háskóla sinna og rannsóknarstofnana og taka þannig þátt í starfsemi Háskóla SÞ.
Ísland var eitt af fyrstu aðildarlöndunum til að sinna kallinu og bauðst til að reka annað hvort jarðhitaskóla eða sjávarútvegsskóla á vegum Háskóla SÞ hérlendis. Fyrstu nemendurnir komu í Jarðhitaskólann vorið 1979 en síðan hefur árlega komið hingað hópur raunvísindamanna og verkfræðinga frá þróunarlöndunum til sex mánaða sérhæfðs náms. Allt er þetta fólk með háskólapróf.
Á málþinginu á föstudag mun Dr. Ingvar Birgir Friðleifsson, forstöðumaður Jarðhitaskólans kynna Háskóla SÞ á Íslandi auk þess sem nemendur úr skólunum fjórum munu segja frá reynslu sinni. Einnig kynnir menntavísindasvið Háskóla Íslands alþjóðlegt nám sem stendur nemendunum einnig til boða. Þá mun Ólafur Páll Jónsson, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands, ræða um menntun til sjálfbærni. Fundarstjóri er Þröstur Freyr Gylfason, formaður Félags SÞ og fer málþingið fram á ensku.
Málþingið er sem fyrr segir hluti af kynningarátakinu „Þróunarsamvinna ber ávöxt“ en því er ætlað að auka skilning og þekkingu almennings á málefnum þróunarlanda og vekja Íslendinga betur til vitundar um samfélagslegar og siðferðilegar skyldur þjóðarinnar í baráttunni gegn fátækt, vannæringu og ójöfnuði í heiminum. Nánari upplýsingar um átakið má finna á facebook-síðu þess – www.facebook.com/throunarsamvinnaberavoxt.
Að átakinu standa ABC barnahjálp, Afríka 20:20, Barnaheill – Save the Children á Íslandi, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna – UNICEF á Íslandi, Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði krossinn, Samband íslenskra kristniboðsfélaga, SOS barnaþorpin á Íslandi, UN Women og Þróunarsamvinnustofnun Íslands.