Þann 10. desember næstkomandi halda UN Women á Íslandi og UNICEF á Íslandi málþing um menntun og valdeflingu kvenna og stúlkna í Afganistan.
Málþingið er í boði forsætis-, utanríkis- og velferðarráðuneyta. Rætt verður um hindranir sem afganskar stúlkur standa frammi fyrir á vegi sínum til menntunar og þrjár konur segja frá persónulegri reynslu sinni af stöðu kvenna í Afganistan. Þær eru:
• Guissou Jahangiri, baráttukona fyrir réttindum stúlkna í Afganistan og framkvæmdastjóri Armanshahr/OpenAsia stofnunarinnar (www.openasia.org)
• Razia Stanikzai, sérfræðingur í menntamálum í Afganistan
• Fatima Hossaini, sérfræðingur í réttindum stúlkna með áherslu á þvinguð hjónabönd
Málþingið er haldið í tengslum við níu milljón króna styrk utanríkis-, velferðar- og forsætisráðuneytanna í til UNICEF í Afganistan fyrir menntun stúlkna. Framlagið er hluti af verkefni ráðuneytanna þriggja sem hlaut styrk úr framkvæmdasjóði jafnréttismála á síðastliðnu ári og hefur annars vegar að markmiði að styðja við menntun og valdeflingu stúlkna og kvenna í Afganistan og hins vegar að kynna stöðu stúlkna í landinu og mikilvægi menntunar fyrir valdeflingu þeirra. Tilgangur verkefnisins sem íslensk stjórnvöld styðja er að auðvelda stúlkum skólagöngu með því að skoða sérstaklega þær hindranir sem á vegi þeirra verða og auka tækifæri þeirra og öryggi.
Aðgengi að menntun hefur margföldunaráhrif
Á málþinginu verður sjónum sérstaklega beint að mikilvægi þess að uppræta fordóma gagnvart menntun kvenna en í Afganistan er enn mikil andstaða gegn henni og ráðist er á ungar konur á götu úti fyrir það eitt að ganga í skóla. Menntun er árangursrík leið til að draga úr fátækt, stuðla að eflingu samfélaga og jafnframt draga úr misrétti. Stuðningur Íslands við baráttuna fyrir aukinni menntun stúlkna og þeim hindrunum sem þær mæta skiptir því miklu.
Með því að beina sjónum að tækifærum kvenna til að ganga í skóla og brjóta niður þá múra sem hindra aðgengi þeirra að menntun í dag er hægt að hafa margföldunaráhrif á samfélagið allt. Menntaðar stúlkur eru líklegri til að ganga seinna í hjónabönd og eignast færri börn sem aftur eru líklegri til að búa við betra heilsufar og ganga menntaveginn. Stúlkur sem hlotið hafa grunnmenntun hafa að sama skapi betri tök á að standa vörð um réttindi sín og hafa áhrif í samfélaginu
Fundarstjóri er Lilja Hjartardóttir.
Hvar: Hótel Saga, Katla
Hvenær: 10. desember
Húsið opnar 8.15. Dagskrá hefst 8.30 – 10.15.
Morgunverður í boði. Frjáls framlög við inngang sem renna til verkefna UNICEF og UN Women.
Hlökkkum til að sjá þig!

